Jarðvarmi slhf kaupir nýtt hlutafé í HS Orku hf


Reykjanesbæ, 13. febrúar 201 2

 

HS Orka hf tilkynnir að Jarðvarmi slhf, félag 14 lífeyrissjóða sem nú á 25% hlut í HS Orku hf, hefur tilkynnt að Jarðvarmi hafi ákveðið að að auk hlut sinn í HS Orku í 33,4% i samræmi við ákvæði samnings félagsins frá 1. júní 2011 um kaup á hlut í HS Orku. Hlutur Alterra Power í HS Orku lækkar samsvarandi úr 75% í 66,6%.

 

Til þess að þetta verði að veruleika mun Jarðvarmi kaupa ný hlutabréf í HS Orku að nafnvirði kr. 878.205.943 á genginu 5,35 krónur á hlut og er fjárfestingin um 4,7 milljarðar króna. Þetta verð er um 15,6% hærra en verðið í upphaflegu viðskiptunum þegar Jarðvarmi gerðist 25% hluthafi en þá greiddi Jarðvarmi 4,63 krónur fyrir hvern hlut. HS Orka stefnir að því að þessir fjármunir verði nýttir sem eiginfjárframlag félagsins í stækkun Reykjanesvirkjunar úr 100 MW í 180 MW. Gert er  ráð fyrir frágangi málsins fyrir lok febrúar.      

 

Varðandi frekari upplýsingar vinsamlegast hafið samband við Júlíus Jónsson, forstjóra HS Orku hf, sími 4225200 / 8605208 eða Ásgeir Margeirsson, stjórnarformann HS Orku hf, sími 6652055.