Eyrir Invest kaupir eigin bréf


Eyrir Invest hefur í dag keypt eigin hlutabréf sem nema 9% af heildarúgefnu hlutafé félagins í skiptum fyrir 2,5% hlut í Marel.   Viðskiptin eru á milli Eyris og Landsbankans. Skipt er á 100 milljónum hluta í Eyri á genginu 26 krónur á hlut fyrir 18,6 milljónir hluta í Marel á 140 krónur á hlut.

Árni Oddur Þórðarson, forstjóri Eyris Invest:

"Eyrir Invest veitir Marel afgerandi kjölfestu með þriðjungshlut í félaginu sem við hyggjumst halda til langframa.   Marel er leiðandi á heimsvísu á miklum vaxtarmarkaði eftir vel heppnaðar yfirtökur.    Marel hefur fjárfest vel í þróun og markaðssókn og er nú að uppskera.  Við teljum að framundan sé mikill og arðsamur innri vöxtur.  

Fjárhagsstaða Eyris er sterk með heildareignir um 400 m evra og yfir 50% eiginfjárhlutfall. Við ætlum að einbeita okkur að núverandi kjarnafjárfestingum sem eru auk Marel, Fokker Technologies og Stork Technical Services.   Jafnframt munum við styrkja Eyri sprota til nýfjárfestinga og vaxtar.“     

Heildarútgefið hlutafé í Eyri Invest er um 1.108 milljónir hlutir, þar af 100 milljónir eigin hlutir. Landsbankinn á 3,5% hlut í Eyri eftir þessi viðskipti að auki á Horn fjárfestingarfélag sem er 100% í eigu Landsbankans 12,5% hlut.   Stærstu hluthafar eru Þórður Magnússon og Árni Oddur Þórðarson og félög í þeirra eigu með ríflega 34% hlut í Eyrir Invest.  

 

Frekari upplýsingar veitir:

Árni Oddur Þórðarson, forstjóri Eyris Invest

Sími: 525-0200

www.eyrir.is

 

Um Eyri

Eyrir Invest er alþjóðlegt fjárfestingarfélag sem leggur ríka áherslu á virka þátttöku í rekstri og stefnumörkun lykileigna  sinna.  Eyrir Invest var stofnað um mitt ár 2000.