Ársreikningur Jeratúns ehf. árið 2011


 Lykiltölur úr ársreikningum 2007 - 2011

 

Rekstrarreikningur 2011 2010 2009 2008 2007
Tekjur 43.032 41.468 39.189 34.714 31.092
Rekstrargjöld -4.771 -4.359 -4.464 -5.656 -3.169
Afskriftir -4.785 -4.785 -4.785 -4.766 -4.749
Fjármunatekjur og fjármagnsgjöld -47.788 -37.247 -67.959 -98.648 -50.654
Hagnaður fyrir skatta -14.312 -4.923 -38.019 -74.357 -27.530
Tekjuskattur 0 0 0 0 0
Hagnaður ársins -14.312 -4.923 -38.019 -74.357 -27.530
Efnahagsreikningur
Fastafjármunir 445.093 449.879 454.664 459.450 460.915
Veltufjármunir 9.038 12.803 14.207 3.637 4.316
Eignir samtals 454.131 462.682 463.871 463.087 465.231
Eigið fé -34.692 -41.380 -61.457 -61.437 -19.080
Langtímaskuldir og skuldbindingar 437.761 453.948 482.282 477.152 440.713
Skammtímaskuldir 51.062 50.114 48.046 47.373 43.598
Eigið fé og skuldir samtals 454.131 462.682 463.871 463.087 465.231
Yfirlit um sjóðstreymi
Handbært fé frá (til) rekstri 14.727 11.996 8.463 5.992 -3.864
Fjárfestingahreyfingar 0 0 0 -3.301 -425
Fjármögnunarhreyfingar -18.506 -13.434 2.097 817 3.323
Handbært fé í árslok 8.974 12.753 14.191 3.631 123
Kennitölur
Veltufjárhlutfall 0,18 0,26 0,30 0,08 0,1
Eiginfjárhlutfall -7,64 -8,94% -13,11% -13,27% -4,10%

 

Ársreikningur Jeratúns ehf. er gerður í samræmi við nýja og endurbætta staðla (IFRS/IAS) og túlkanir (IFRIC) sem tóku gildi á reikningsárinu.

Ársreikningur Jeratúns ehf. fyrir árið 2011 var staðfestur af stjórn félagsins í dag, 28. mars 2012.

Jeratún ehf. er einkafyrirtæki í eigu Grundarfjarðarbæjar, Helgafellssveitar, Snæfellsbæjar og Stykkishólmsbæjar og bera þau ábyrgð á skuldbindingum þess. Hlutverk félagsins er bygging og rekstur skólahúsnæðis Fjölbrautaskóla Snæfellinga í Grundarfirði. Starfsemi félagsins flokkast því undir að vera á vettvangi sveitarfélaga.

Tap félagsins á árinu 2011 var 14.312 þús. kr. og í lok þess var eigið fé neikvætt um sem nam 34.692 þús. kr. samkvæmt ársreikningi. Ástæða fyrir þessu tapi má rekja til mikils fjármagnskostnaðar og of lágrar húsaleigu. Stjórnin mun leggja það til við hluthafafund félagsins að hlutafé verði aukið um 27 milljónir.

Stjórn félagsins vekur athygli á áritun óháðs endurskoðanda sem er með ábendingu.

Lántaka félagsins er vegna fjármögnunar framkvæmda við Fjölbrautaskóla Snæfellinga. Sveitarfélögin ásamt ríkinu greiða húsaleigu sem á að standa undir afborgunum og vöxtum af lánum. Í lok ársins námu eftirstöðvar lána 478,7 millj. kr. og voru eftirstöðvar í skilum. Sveitarfélögin bera hlutfallslega ábyrgð á greiðslu lánanna.

Félagið er með leigusamning við Menntamálaráðuneytið og sveitarfélögin á Snæfellsnesi vegna fasteignarinnar til 31. júlí 2024. Núverandi leigugreiðslur eru kr. 54.006.000 á ársgrundvelli með virðisaukaskatti og eru verðtryggðar með vísitölu neysluverðs.

Kristinn Jónasson, er stjórnarformaður Jeratúns ehf. og veitir frekari upplýsingar um starfsemi þess og stöðu.


Attachments