Ársreikningar Akureyrarbæjar fyrir árið 2011

Afkoman betri en áætlun gerði ráð fyrir


Rekstur Akureyrarbæjar gekk heldur betur en áætlanir gerðu ráð fyrir árið 2011. Sjóðsstreymi var einnig ágætt. Rekstrarniðurstaða fyrir fjármagnsliði var jákvæð um 1.100 millj.kr. en var neikvæð um 419 millj. kr. eftir fjármagnsliði og skatta. Er það liðlega 226 milljóna króna  betri afkoma en áætlanir gerðu ráð fyrir, en í áætlun samstæðunnar var neikvæð afkoma áætluð 646 millj.kr. Bæði tekjur og gjöld urðu hærri en áætlun gerði ráð fyrir en  fjármagnskostnaður lægri. Heildarskuldir lækka að raungildi frá fyrra ári.

Samkvæmt sveitarstjórnarlögum skal fjalla um ársreikninginn á tveimur fundum í sveitarstjórn og verður hann til umfjöllunar í bæjarstjórn Akureyrar 17. apríl og við síðari umræðu þann 8. maí nk.

Ársreikningurinn er settur fram samkvæmt reikningsskilum sveitarfélaga. Starfseminni er skipt upp í tvo hluta, A-hluta annars vegar og B-hluta hins vegar. Til A-hluta telst starfsemi sem að hluta eða öllu leyti er fjármögnuð með skatttekjum. Um er að ræða aðalsjóð, Fasteignir Akureyrarbæjar, framkvæmdamiðstöð og eignasjóð gatna. Til B-hluta teljast fjárhagslega sjálfstæð fyrirtæki sem að hálfu eða meirihluta eru í eigu sveitarfélagsins en rekstur þeirra er að stofni til fjármagnaður með þjónustutekjum. Fyrirtækin eru: Félagslegar íbúðir, Fráveita Akureyrabæjar, Strætisvagnar Akureyrabæjar, Öldrunarheimili Akureyrabæjar, Framkvæmdasjóður Akureyrarbæjar, Bifreiðastæðasjóður Akureyrabæjar, Hafnarsamlag Norðurlands, Norðurorka hf, Heilsugæslustöðin á Akureyri, Byggingasjóður Náttúrufræðistofnunar og Gjafasjóður Öldrunarheimila Akureyrarbæjar.

Samkvæmt yfirliti um sjóðstreymi nam veltufé frá rekstri 1.888 millj.kr. og handbært fé frá rekstri 1.898 millj.kr. Fjárfestingarhreyfingar námu samtals 1.013 millj.kr. Fjármögnunarhreyfingar námu samtals – 1.050 millj.kr. Afborgun langtímalána nam 949 millj.kr. Ný langtímalán námu 203 millj.kr. Handbært fé sveitarfélagsins í árslok nam 1.699 millj.kr.

Heildarlaunagreiðslur án launatengdra gjalda hjá samstæðunni voru 6.770.717 þúsundir króna. Fjöldi stöðugilda var að meðaltali 1.509 sem er fækkun um 6  frá fyrra ári. Laun og launatengd gjöld sveitarfélagsins ásamt lífeyrisskuldbindingu, í hlutfalli við rekstrartekjur þess voru 54,5%. Annar rekstrarkostnaður var 31,2% af rekstrartekjum. Skatttekjur sveitarfélagsins voru 496 þús.kr. á hvern íbúa en heildartekjur samtals 907 þús.kr. á hvern íbúa. Árið 2010 voru skatttekjurnar 414 þús.kr. á hvern íbúa og heildartekjurnar 887 þús.kr.

Samkvæmt efnahagsreikningi eru eignir sveitarfélagsins bókfærðar á 36.949 millj.kr., þar af eru veltufjármunir 3.792 millj.kr. Skuldir sveitarfélagsins með lífeyrisskuldbindingum nema samkvæmt efnahagsreikningi 22.556 millj.kr., þar af eru skammtímaskuldir 3.058. millj.kr. Heildarskuldir í árslok 2010 námu samtals 22.367 milljónum króna. Veltufjárhlutfallið er 1,24 í árslok, en var 1,31 árið áður. Bókfært eigið fé nemur 14.394 millj.kr í árslok en nam árið áður 14.416 millj. kr. Eiginfjárhlutfall í árslok var 39% sem er sama hlutfall og árið áður.

Nánari upplýsingar veitir Dan Brynjarsson, Fjármálastjóri, í síma 460 1000.


Attachments