Leiðrétting - Dagskrá og tillögur fyrir aðalfund HB Granda 13. apríl 2012 - Frétt birt 2012-03-30 18:25:00 og 2012-04-02 10:37:54


Leiðrétting:   Arðsréttindadagur er 18. apríl 2012 (arður greiðist þeim sem skráðir eru í hlutaskrá að loknu uppgjöri Verðbréfaskráningar Íslands fyrir kl. 12:00 þann 18. apríl 2012) - en ekki kl. 9:00 eins og sagði í fyrri tilkynningu.

 

HB Grandi hf – Dagskrá aðalfundar

Dagskrá og tillögur fyrir aðalfund HB Granda hf. 13. apríl 2012

 

Dagskrá

  1. Skýrsla stjórnar félagsins um starfsemi þess síðastliðið ár.
     
  2. Endurskoðaður ársreikningur lagður fram til staðfestingar.
     
  3. Tillaga stjórnar um greiðslu arðs.
     
  4. Ákvörðun um þóknun stjórnarmanna.
     
  5. Kosning stjórnar félagsins.
     
  6. Kosning endurskoðenda skv. 21. gr.
     
  7. Tillaga um að stjórn fái heimild til kaupa á eigin hlutum.
     
  8. Önnur mál, löglega upp borin.

 

Atkvæðaseðlar og fundargögn verða afhent á fundarstað frá kl. 16:30.

Tillögur fyrir aðalfund HB Granda hf. 13. apríl 2012:

Tillaga um greiðslu arðs

Aðalfundur HB Granda hf. haldinn 13. apríl 2012 samþykkir að greiddur verði 40% arður af nafnverði hlutafjár (0,40 kr. á hlut) vegna ársins 2011, alls að fjárhæð 679.213.490 kr. Arðurinn verði greiddur 30. apríl 2012. Síðasti viðskiptadagur þar sem arður fylgir bréfunum er 13. apríl 2012 og arðleysisdagur því 16. apríl 2012.

Arðsréttindadagur er 18. apríl 2012 (arður greiðist þeim sem skráðir eru í hlutaskrá að loknu uppgjöri verðbréfaskráningar Íslands fyrir kl. 12:00 þann 18. apríl 2012)

Tillaga um þóknun til stjórnarmanna

Þóknun til stjórnarmanna fyrir liðið ár er kr. 800.000, formaður fái þrefaldan hlut og varamaður hálfan hlut.

Kosning stjórnar

Framboðsfrestur rennur út fimm dögum fyrir upphaf aðalfundar. Upplýsingar um frambjóðendur til stjórnar verða birtar eigi síðar en tveim dögum fyrir aðalfund.

Kosning endurskoðanda

Endurskoðunarfélag: KPMG ehf.

Tillaga um að stjórn fái heimild til kaupa á eigin hlutum

Aðalfundur veitir stjórn félagsins heimild til að kaupa eigin hluti í félaginu. Heimild þessi stendur í 18 mánuði og takmarkast við að samanlögð kaup fari ekki yfir 10% af heildarhlutafé félagsins á hverjum tíma. Kaupverð hluta skal vera hæst 15% yfir síðasta þekkta söluverði á First North markaðinum áður en kaup eru gerð.