Árshlutauppgjör HS Orku hf.


Stjórn HS Orku hf samþykkti á fundi sínum í dag árshlutareikning fyrirtækisins fyrir fyrsta ársfjórðung 2012. Árshlutareikningurinn er gerður í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla, IFRS og er í íslenskum krónum. Árshlutareikninginn má finna á vefsíðu fyrirtækisins http://www.hsorka.is

Helstu atriði árshlutareikningsins eru þessi:

· EBITDAer áfram öflug og er alls um 786 m.kr. á fyrsta ársfjórðungi 2012en var 764 m.kr. ásama tímabil 2011.

· Eiginfjárhlutfall er mjög sterkt í lok mars 2012 eða um 47%. Á tímabilinu var hlutafé aukið um 4.698 m.kr. og var hið nýja hlutafé greitt inn í lok febrúar 2012.

· Reiknaðir fjármagnsliðir hafa afgerandi áhrif á afkomu tímabilsins sem er nánast við núllið. Gengistap var 718 m.kr. en á móti kom hækkun afleiðna (framtíðarvirði orkusölusamninga sem tengjast álverði) um 462 m.kr.

· Þrátt fyrir öfluga EBITDA lækka tekjur um 6% eða um 112 m.kr. og námu 1.841 m.kr. í lok ársfjórðungsins en voru 1.953 m.kr. á sama tímabili árið 2011. Að sama skapi lækkar rekstrarkostnaður um 10% eða sem nemur 143 m.kr. milli þessara tímabila Nokkrar ástæður eru fyrir þessari lækkun tekna, m.a. lækkun á álverði, en stærst vegur hins vegar að samningur um sölu á 35 Mwe til Norðuráls Grundartanga rann út 1. október 2011. Á móti því kemur að samningur við Landsvirkjun um kaup á 8 MWe á ári rann út nú um síðustu áramót. Mismunurinn (27 MWe) hefur síðan að mestu verið seldur á almennum markaði en þar er nýtingartíminn talsvert lægri. Flutningskostnaður lækkar síðan þar sem ekki er lengur greitt fyrir flutning þessara 35 MWe til Norðuráls en jafnvirði þess kostnaðar var áður hluti teknanna.

Frekari upplýsingarveitir Júlíus Jónsson, forstjóri HS Orku hf, í síma 860 5208.

 


Attachments