Sláturfélag Suðurlands svf. hefur samþykkt kauptilboð í 30% eignarhlut sinn í Ísfugli ehf. Tilboðið er með fyrirvara um fjármögnun viðskiptabanka tilboðsgjafa og samþykki forkaupsréttarhafa. Gangi salan á eignarhlutnum eftir mun hún hafa um 70 milljón króna jákvæð áhrif á rekstur félagsins.
Frekari upplýsingar veita:
Steinþór Skúlason, forstjóri í síma 575 6000 – steinthor@ss.is
Hjalti H. Hjaltason, fjármálastjóri í síma 575 6000 – hjalti@ss.is