Niðurstaða skuldabréfaskipta og sala skuldabréfa


 

Akureyrarbær bauð í síðustu viku eigendum skuldabréfaflokksins AKU 03  1 sem er á gjalddaga í mars 2013 að kaupa af þeim flokkinn og greiða fyrir með stækkun á skuldabréfaflokknum AKU 10 1. 

Útgáfa AKU 03 1 er 1.650.000.000 kr. að nafnvirði en eigendur 1.500.000.000 kr. að nafnvirði tóku tilboðinu. Í framhaldi verður AKU 10 1 stækkaður um 2.340.000.000 kr. að nafnvirði en AKU 03 1 minnkaður um 1.500.000.000 kr.

Jafnframt eru seld ný bréf í AKU 10 1 að nafnverði 800.000.000 kr. og er því heildarstækkun AKU 10 1 3.140.000.000 kr.

 

Akureyri , 10. júlí 2012

Dan Brynjarsson

fjármálastjóri