Árshlutareikningur Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum 1. janúar 2012 - 30. júní 2012


Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum er stofnun í eigu sveitarfélaganna á Suðurnesjum og bera þau ábyrgð á skuldbindingum þess. Eignarhaldið er breytilegt og fer eftir íbúafjölda í sveitarfélögum á hverjum tíma. Hlutverk sambandsins er í meginatriðum að hafa umsjón með og annast ýmiskonar verkefni sem sveitarfélögin á Suðurnesjum standa sameiginlega að. Starfsemi sambandsins flokkast því undir að vera á vettvangi sveitarfélaga.

Á árinu 2003 seldi sambandið skuldabréf í opnu skuldabréfaútboði fyrir 500 millj. kr. Lánið er verðtryggt, greiðist á tíu árum og ber 5% fasta vexti. Láninu er ætlað að fjármagna framkvæmdir við Fjölbrautaskóla Suðurnesja sem sveitarfélögin þar standa að. Samkvæmt samkomulagi þeirra við ríkissjóð mun hann greiða hlutdeild í framkvæmdum og annast sambandið fjármögnun þeirra fyrir hönd sveitarfélaganna. Sveitarfélögin bera hlutfallslega ábyrgð á greiðslu lánsins og sambandið sér um að innheimta hjá hverju þeirrra hlutdeild í afborgun og vöxtum af láninu á hverjum gjalddaga og standa skil á þeim til skuldareigenda. Þann 30.júní 2012 námu eftirstöðvar lánsins 117,2 millj. kr. og eftirstöðvar þess voru í fullum skilum.

Tekjuafgangur sambandsins á tímabilinu 1/1 – 30/6 2012 nam um 5,6 milljónum kr. og eigið fé þann 30/6 2012 nam 37,7 milljón kr. samkvæmt árshlutareikningi. Starfsemi sambandsins var í megninatriðum í samræmi við áætlanir og greiðslur sveitarfélaganna til sambandsins vegna fjármögnunarverkefna þess voru í skilum.

 

Berglind Kristinsdóttir er framkvæmdastjóri Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum og veitir frekari upplýsingar um starfsemi þess og stöðu.

 


Attachments

Samþykktur árshlutareikningur Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum 30.06.2012.pdf Lykiltölur til Kauphallarinnar 30.08.pdf