Samningur við Jarðboranir


Þriðjudaginn 25. september undirritaðu Júlíus Jónsson, forstjóri HS Orku hf og Ágúst Torfi Haukssson, forstjóri Jarðborana,  samning um borun á tveimur holum á Reykjanesi með möguleika á borun þeirrar þriðju ásamt viðgerð á einni holu. Samningurinn var gerður að undangenginni verðkönnun á verkefninu hjá Jarðborunum hf og Borfélagi Íslands en tilboð beggja aðila voru mjög hagstæð fyrir HS Orku hf. Borun þessara holna er til að tryggja núverandi rekstur orkuversins með nauðsynlegu varaafli og um leið til að leggja drög að orkuöflun fyrir stækkun orkuversins. Jarðboranir munu flytja til landsins frá Danmörku Bentec bor sinn sem er stærsti bor sem hér hefur borað með 350 tonna lyftigetu. Borinn er að því leiti sérstakur að hann verður knúinn með raforku frá orkuverinu í stað hefðbundinna dieselvéla. Borin mun koma til landsins eftir u.þ.b. mánuð en reiknað er með að borverkið hefjist um miðjan nóvember.