Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar 2013

Jákvæð rekstrarafkoma


Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar fyrir árið 2013 var lögð fram bæjarráði Akureyrar í dag. Rekstarafkoma A- og B-hluta er áætluð jákvæð um 535,9 milljónir króna eftir fjármagnsliði og tekjuskatt.

Jafnframt var lögð fram þriggja ára áætlun vegna áranna 2014, 2015 og 2016.

Fjárhagsáætlunin er sett fram samkvæmt reikningsskilum sveitarfélaga. Starfseminni er skipt upp í tvo hluta, A-hluta annars vegar og B-hluta hins vegar. Til A-hluta telst starfsemi sem að hluta eða öllu leyti er fjármögnuð með skatttekjum. Um er að ræða Aðalsjóð, Fasteignir Akureyrarbæjar, Framkvæmdamiðstöð og Eignasjóð gatna. Til B-hluta teljast fjárhagslega sjálfstæð fyrirtæki sem að hálfu eða meirihluta eru í eigu sveitarfélagsins en rekstur þeirra er að stofni til fjármagnaður með þjónustutekjum. Fyrirtækin eru: Félagslegar íbúðir, Fráveita Akureyrabæjar, Strætisvagnar Akureyrabæjar, Öldrunarheimili Akureyrabæjar, Framkvæmdasjóður Akureyrarbæjar, Bifreiðastæðasjóður Akureyrabæjar, Hafnarsamlag Norðurlands, Norðurorka hf., Heilsugæslustöðin á Akureyri, Byggingasjóður Náttúrufræðistofnunar og Gjafasjóður Öldrunarheimila Akureyrarbæjar. 

Samkvæmt yfirliti um sjóðstreymi samstæðunnar mun veltufé frá rekstri nema 2.602,4 millj.kr. og handbært fé frá rekstri 2.587,4 millj.kr. Fjárfestingarhreyfingar nema samtals 1.965,6 millj.kr. Fjármögnunarhreyfingar munu nema samtals 424,1 millj.kr. Afborgun langtímalána er áætlað að nemi 1.420,1 millj.kr. Ný langtímalán eru áætluð 1.020 millj.kr. Handbært fé sveitarfélagsins í árslok 2013 er áætlað að nemi 2.921 millj.kr.

Heildarlaunagreiðslur ásamt launatengdum gjöldum hjá samstæðunni eru áætlaðar 9.609,7 millj.kr. Laun og launatengd gjöld sveitarfélagsins, í hlutfalli við rekstrartekjur þess, eru áætluð 53,0%. Annar rekstrarkostnaður er áætlaður 28,4% af rekstrartekjum. Skatttekjur sveitarfélagsins ásamt jöfnunarsjóði eru áætlaðar 554 þús.kr. á hvern íbúa en tekjur samtals 992 þús.kr. á hvern íbúa. Árið 2012 eru skatttekjurnar ásamt jöfnunarsjóði áætlaðar 519 þús.kr. á hvern íbúa og heildartekjurnar 927 þús.kr.

Áætlað er að eignir samstæðu sveitarfélagsins í efnahagsreikningi 31.12.2013 verði bókfærðar á 38.972 millj.kr., þar af eru veltufjármunir 4.484 millj.kr. Skuldir sveitarfélagsins með lífeyrisskuldbindingum nema samkvæmt efnahagsreikningi 24.001 millj.kr., þar af eru skammtímaskuldir 3.204 millj.kr. Áætlað er að heildareignir á hvern íbúa muni nema 2.133 þús. kr. og heildarskuldir 1.227 þús. kr. Veltufjárhlutfallið er áætlað 1,40 í árslok. Bókfært eigið fé er áætlað að nemi 14.971 millj.kr í árslok 2013. Eiginfjárhlutfall í árslok 2013 er áætlað 38%.

Samkvæmt sveitarstjórnarlögum skal fjalla um fjárhagsáætlun á tveimur fundum í sveitarstjórn og verður hún til umfjöllunar í bæjarstjórn Akureyrar 6. nóvember og við síðari umræðu þann 4. desember nk.

 

Meðfylgjandi í pdf-skjali er frumvarp að fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar fyrir árið 2013, samstæðan ásamt öllum fyrirtækjum bæjarins sem undir áætlunina falla. Auk fjárhagsáætlunarinnar fyrir árið 2013 er birt í frumvarpinu þriggja ára áætlun áranna 2014-2016 og sundurliðuð áætlun vegna áranna 2012 og 2013.

 

 

Nánari upplýsingar veitir Dan Brynjarsson, fjármálastjóri, í síma 460 1000. Netfang dan@akureyri.is


Attachments

Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar 2013 - 2016 fyrri umræða.pdf