Árshlutareikningur 30.09.2012

Stjórn HS Orku hf samþykkti á fundi sínum í dag árshlutareikning fyrirtækisins fyrir fyrstu níu mánuði ársins 2012.


Árshlutareikningurinn er gerður í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla, IFRS og er í íslenskum krónum. Árshlutareikninginn má finna á vefsíðu fyrirtækisins http://www.hsorka.is

 

Helstu atriði árshlutareikningsins eru þessi:

· EBITDA er áfram öflug og er alls um 2.034 m.kr. á fyrstu níu mánuðum ársins 2012 en var 2.122 m.kr. á sama tímabil 2011.

· Eiginfjárhlutfall er mjög sterkt í lok september 2012 eða um 50%. Á tímabilinu nýtti Jarðvarmi slhf. rétt sinn til að auka hlut sinn í HS Orku úr 25% upp í 33,4%, vegna þessa var hlutafé aukið um 4.698 m.kr. og var hið nýja hlutafé greitt inn í lok febrúar 2012.

· Reiknaðir fjármagnsliðir hafa afgerandi áhrif á afkomu tímabilsins sem er hagnaður upp á 1.071 milljónir.  Hækkun  afleiðna (framtíðarvirði orkusölusamninga sem tengjast álverði) um  2.075 m.kr vega þyngst en gengistap var 249 m.kr. kemur móti kom hækkuninni..

· Þrátt fyrir gott EBITDA lækka tekjur um 11% eða um 596 m.kr. og námu 4.954 m.kr. í lok ársfjórðungsins en voru 5.551 m.kr. á sama tímabili árið 2011. Að sama skapi lækkar rekstrarkostnaður um 12% eða sem nemur 488 m.kr. milli þessara tímabila Nokkrar ástæður eru fyrir þessari lækkun tekna, m.a. lækkun á álverði, en stærst vegur hins vegar að samningur um sölu á 35 Mwe til Norðuráls Grundartanga rann út 1. október 2011. Á móti því kemur að samningur við Landsvirkjun um kaup á 8 MWe á ári rann út nú um síðustu áramót. Mismunurinn (27 MWe) hefur síðan að mestu verið seldur á almennum markaði en þar er nýtingartíminn talsvert lægri. Flutningskostnaður lækkar síðan þar sem ekki er lengur greitt fyrir flutning þessara 35 MWe til Norðuráls en jafnvirði þess kostnaðar var áður hluti teknanna.

· Frekari upplýsingar veitir Júlíus Jónsson, forstjóri HS Orku hf, í síma 860 5208.

 


Attachments

HS Orka Financial Statement january - september  2012.pdf