Ársreikningur Grindavíkurbæjar fyrir árið 2012


   Ársreikningur Grindavíkurbæjar og stofnana fyrir árið 2012 verður lagður fram til fyrri umræðu í bæjarstjórn Grindavíkur þann 2. maí 2013.

Samkvæmt lögum ber að fjalla um ársreikninginn á tveimur fundum í bæjarstjórn og verður seinni  umræða þann 28. maí 2013 og á þeim fundi er samþykkt bæjarstjórnar á ársreikningnum fyrirhuguð.

   Ef bæjarstjórn samþykkir ársreikninginn í fyrirliggjandi mynd og við afgreiðslu og samþykkt bæjarstjórnar koma ekki fram mikilvægar viðbótarupplýsingar, sem geta haft áhrif á gerð ársreikningsins og/eða niðurstöður hans, munu endurskoðendur árita ársreikninginn með fyrirvaralausri áritun.


Attachments

Ársreikningur Grindavíkur 2012.pdf Ársreikningur Grindavíkur 2012, samantekt.pdf