HS Orka hf leggur fram árshlutareikning fyrir fyrsta ársfjórðung 2013


 

Stjórn HS Orku hf samþykkti á fundi sínum í dag árshlutareikning fyrirtækisins fyrir fyrsta ársfjórðung 2013. Árshlutareikningurinn er gerður í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla, IFRS og er í íslenskum krónum. Árshlutareikninginn má finna á vefsíðu fyrirtækisins http://www.hsorka.is

Helstu atriði árshlutareikningsins eru þessi:

· EBITDA er áfram öflug og er alls um 781 m.kr. á fyrsta ársfjórðungi 2013 en var 786 m.kr. á sama tímabil 2012.

· Eiginfjárhlutfall er mjög sterkt í lok mars 2013 eða um 54%.

· Reiknaðir fjármagnsliðir hafa afgerandi áhrif á afkomu tímabilsins sem er neikvæð um 942 milliónir. Þar vegur þyngst lækkun afleiðna (framtíðarvirði orkusölusamninga sem tengjast álverði) um 2.756 m.kr Á móti komi gengishagnaður upp á 936 m.kr.

· EBITDA er góð og tekjur hækka um 6% eða um 106 m.kr. og námu 1.947 m.kr. í lok ársfjórðungsins en voru 1.841 m.kr. á sama tímabili árið 2012. Að sama skapi hækkar rekstrarkostnaður um 10% eða sem nemur 111 m.kr. milli þessara tímabila Nokkrar ástæður eru fyrir þessari aukningu tekna. Munar þar mest um aukna sölu á smásölumarkaði en lækkandi álverð dregur svo úr tekjuaukningunni á móti. Orkukaup hafa aukist nokkuð og flutningskostnaður hækkað vegna breytinga á gjaldskrá Landsnets. Þá hefur skrifstofu- og stjórnunarkostnaður hækkað, fyrst og fremst vegna kostnaðar við gerðardómsmál vegna orkusölusamnings við Norðurál á Grundartanga og hækkunar lífeyrisskuldbindingar.  

· Frekari upplýsingar veitir Júlíus Jónsson, forstjóri HS Orku hf, í síma 860 5208.


Attachments

HS Orka Financial Statement Q1 2013 - final.pdf