Reykjavík, 30. maí 2013
Aðalfundur Eyris Invest hf. var haldinn þann 30. maí í höfuðstöðvum félagsins að Skólavörðustíg 13, Reykjavík.
1.Ársreikningur og ársskýrsla
Ársreikningur og ársskýrsla félagsins voru samþykkt samhljóma.
2.Ákvörðun um ráðstöfun hagnaðar eða taps
Fundurinn samþykkti samhljóma að tap félagsins fyrir rekstrarárið 2012 yrði dregið frá eigin fé félagsins.
3.Fundurinn samþykkti eftirfarandi breytingar á samþykktum félagsins
Greinar 24. og 25:
Tilvísunum í dagsetninguna 1. janúar 2013 var breytt í 1. febrúar 2013. Ennfremur var tilvísunum í dagsetninguna 1. janúar 2018 breytt í 1. febrúar 2018.
Breytingar þessar eiga við þá dagsetningu sem notast er við þegar forgangsréttur hluthafa í B-flokki til arðgreiðslu er reiknaður. Félagið tilkynnti um útgáfu B-hluta þann 1. febrúar 2013.
4.Kosning stjórnar félagsins
Eftirtaldir voru kosnir í stjórn félagsins af hluthöfum þess:
- Þórður Magnússon
- Ingólfur Guðmundsson
- Jón Helgi Guðmundsson
- Ólafur S. Guðmundsson
- Sigurjón Jónsson
- Svanhvít Hrólfsdóttir
Að aðalfundi loknum var haldinn fyrsti stjórnarfundur nýrrar stjórnar sem m.a. skipti með sér verkum. Þórður Magnússon var kjörinn formaður stjórnar.
5.Kosning endurskoðanda
Tillaga stjórnar um að KPMG ehf. yrði kosið endurskoðandi félagsins var samþykkt samhljóma.
6.Ákvörðun greiðslu til stjórnarmanna
Tillaga stjórnar um að greiðslur til stjórnarmanna fyrir komandi starfsár skuli nema 175.000 kr. á mánuði var samþykkt.
7.Engin önnur mál voru rædd á fundinum