HS Orka hf leggur fram árshlutareikning fyrir fyrri helming ársins 2013


Stjórn HS Orku hf samþykkti á fundi sínum í dag árshlutareikning fyrirtækisins fyrir fyrri helming ársins 2013. Árshlutareikningurinn er gerður í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla, IFRS og er í íslenskum krónum. Árshlutareikninginn má finna á vefsíðu fyrirtækisins http://www.hsorka.is

Helstu atriði árshlutareikningsins eru þessi:

  • EBITDA er áfram öflug og er alls um 1.294 m.kr. á fyrri helmingi 2013 en var 1.441 m.kr. á sama tímabil 2012.
     
  • Eiginfjárhlutfall 30. júní 2013 er mjög sterkt eða 55%.
     
  • Reiknaðir fjármagnsliðir hafa afgerandi áhrif á afkomu tímabilsins sem er neikvæð um 1.480 milliónir. Þar vegur þyngst  lækkun afleiðna (framtíðarvirði orkusölusamninga sem tengjast álverði) um 3.950 m.kr Á móti var gengishagnaður upp á 1.126 m.kr.
     
  • EBITDA er góð og tekjur hækka um 4% eða um 124 m.kr. og námu 3.590 m.kr. í lok júní, en voru 3.466 m.kr. á sama tímabili árið 2012. Að móti hækkar rekstrarkostnaður um 14% eða sem nemur 426 m.kr. milli þessara tímabila Nokkrar ástæður eru fyrir þessari aukningu tekna. Munar þar mest um aukna sölu á smásölumarkaði en lækkandi álverð dregur svo talsvert úr tekjuaukningunni á móti. Á kostnaðarhliðinni hafa orkukaup aukist nokkuð og flutningskostnaður hækkað vegna breytinga á gjaldskrá Landsnets. Ráðist var í viðhaldsboranir á tveimur holum á fyrri hluta ársins en engar slíkar boranir voru á sama tímabili í fyrra. Þá hefur skrifstofu- og stjórnunarkostnaður hækkað, fyrst og fremst vegna kostnaðar við gerðardómsmál vegna orkusölusamnings við Norðurál á Grundartanga.


Frekari upplýsingar veitir Júlíus Jónsson, forstjóri HS Orku hf, í síma 860 5208



 


Attachments

HS Orka Financial Statement June 2013.pdf