Sláturfélag Suðurlands - Afkoma ársins 2013


Afkoma ársins 2013

  • Tekjur ársins 10.207 m.kr. en 9.394 m.kr. árið 2012
  • 466 m.kr. hagnaður á árinu á móti 463 m.kr. árið áður
  • EBITDA afkoma var 1.021 m.kr. en 980 m.kr. árið 2012
  • Eiginfjárhlutfall 51% í árslok 2013 en 50% árið áður

 

Samstæðuársreikningurinn samanstendur af ársreikningi Sláturfélags Suðurlands svf. og dótturfélagi þess, Reykjagarði hf.

Hagnaður samstæðu Sláturfélags Suðurlands á árinu 2013 var 466 m.kr. skv. rekstarreikningi.  Árið áður var 463 m.kr. hagnaður.  Eigið fé er 3.578 m.kr. og eiginfjárhlutfall samstæðunnar er 51%.

Rekstrartekjur samstæðu Sláturfélags Suðurlands voru 10.207 m.kr. árið 2013, en 9.394 m.kr. árið áður og hækka því um tæp 9%.  Aðrar tekjur voru 12 m.kr. en 53 m.kr. árið áður. 

Vöru- og umbúðanotkun var 5.348 m.kr. en 4.903 m.kr. árið áður.  Launakostnaður var 2.172 m.kr. og hækkaði um tæp 10%, annar rekstrarkostnaður var 1.679 m.kr. og hækkaði um 6% og afskriftir hækkuðu um rúm 2%.  Rekstrarhagnaður án fjármunatekna og fjármagnsgjalda var 726 m.kr., en 692 m.kr. árið áður.  Hagnaður fyrir fjármagnsgjöld og afskriftir (EBITDA) var 1.021 m.kr.  en var 980 m.kr. árið áður.

Fjármagnsgjöld umfram fjármunatekjur voru 176 m.kr., en voru 171 m.kr. árið áður.  Gengistap nam 6 m.kr. samanborið við 8 m.kr. gengishagnað árið áður.

Hlutdeild í afkomu hlutdeildarfélaga var jákvæð um 23 m.kr. en árið áður um 29 m.kr.  Reiknaður gjaldfærður tekjuskattur er 106 m.kr. en 87 m.kr. árið áður.  Hagnaður af rekstri ársins var 466 m.kr. en 463 m.kr. árið áður.

Veltufé frá rekstri án vaxta og skatta var 1.006 m.kr. árið 2013 samanborið við 973 m.kr. árið 2012.  Heildareignir Sláturfélagsins 31. desember 2013 voru 7.021 m.kr. og eiginfjárhlutfall 51%, en 50% árið áður.   Veltufjárhlutfall var 2,7 árið 2013, en 3,8 árið áður.

Fjárfest var á árinu fyrir 681 m.kr. í varanlegum rekstrarfjármunum en 378 m.kr. árið áður.  Á árinu var starfstöð félagsins á Selfossi stækkuð en þar er m.a. slátur- og frystihús félagsins.  Einnig var hafin bygging á nýju vöruhúsi fyrir áburð á athafnasvæði félagsins í Þorlákshöfn.  Seldar voru eignir fyrir 21 m.kr. 

Samkvæmt samþykkt aðalfundar félagsins í mars 2013 var í aprílmánuði greiddur 14,5% arður af B-deild stofnsjóðs alls 26 m.kr. og reiknaðir 7% vextir á A-deild stofnsjóðs alls 20 m.kr.

Stjórnin staðfesti endurskoðaðan ársreikning félagsins á stjórnarfundi í dag.

Sláturfélagið er skráð á First North markaðinn hjá NASDAQ OMX.  Sláturfélagið birtir upplýsingar um afkomu á sex mánaða fresti.

 

Aðalfundur

Aðalfundur Sláturfélags Suðurlands verður haldinn föstudaginn 21. mars n.k.  Stjórn félagsins mun þar leggja til að greiddur verði 13,7% arður af B-deild stofnsjóðs, þar af verðbótarþáttur 3,7%, alls 24,7 m.kr. eða 0,14 kr. á hvern útgefin hlut og reiknaðir 6% vextir á höfuðstól inneigna í A-deild stofnsjóðs, alls 18 m.kr.

 

Staða og horfur

Afkoma Sláturfélagsins hefur verið stöðug og góð undanfarin ár. Fjárhagsstaða félagsins er einnig mjög sterk með 51% eiginfjárhlutfall og veltufjárhlutfall 2,7. Árleg greiðslubyrði lána er lág miðað við greiðslugetu félagsins og skuldahlutfall lágt. Geta félagsins til fjárfestinga er því viðunandi.

 

Staða félagsins er mjög sterk og spennandi vaxtartækifæri í öllum megindeildum.

 

Fjárhagsdagatal 2014

Aðalfundur 2014                   21. mars 2014

Jan-jún 2014 uppgjör            22. ágúst 2014

Júl-des 2014 uppgjör            19. febrúar 2015

Aðalfundur 2015                   20. mars 2015

 

 

 

Frekari upplýsingar veitir:

 

Steinþór Skúlason, forstjóri í síma 575 6000 – steinthor@ss.is

Hjalti H. Hjaltason, fjármálastjóri í síma 575 6000 – hjalti@ss.is

 

 

 

 

 

 


Attachments

SS samstæða 2013.pdf AfkSS2013.xlsx