Byggðastofnun - Ársreikningur 2013


Ársreikningur Byggðastofnunar 2013

Ársreikningur Byggðastofnunar fyrir árið 2013, var staðfestur af stjórn stofnunarinnar 14. mars 2014.

Hagnaður ársins nam 188,9 milljónum króna.  Til samanburðar nam tap ársins 2012 152,8 milljónum króna.  Eiginfjárhlutfall í lok árs 2013 skv. eiginfjárákvæðum laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki var 16,0%

Um stofnunina gilda lög um Byggðastofnun nr. 106/1999 og reglugerð nr. 347/2000.  Hlutverk Byggðastofnunar er að vinna að eflingu byggðar og atvinnulífs á landsbyggðinni.  Í samræmi við hlutverk sitt vinnur stofnunin að undirbúningi, skipulagi og fjármögnun verkefna og veitingu lána með það að markmiði að treysta byggð, efla atvinnu og stuðla að nýsköpun í atvinnulífi. Fjármögnun verkefna skal eftir föngum vera í samstarfi við aðra.  Byggðastofnun fylgist með þróun byggðar í landinu, m.a. með gagnasöfnun og rannsóknum. Stofnunin skipuleggur og vinnur að atvinnuráðgjöf í samstarfi við atvinnuþróunarfélög, sveitarfélög og aðra. Stofnunin getur gert eða látið gera áætlanir um þróun byggðar og atvinnulífs í þeim tilgangi að treysta búsetu og atvinnu í byggðum landsins. Stofnunin getur einnig tekið þátt í gerð svæðisskipulags samkvæmt skipulagslögum.

Helstu niðurstöður úr ársreikningi Byggðastofnunar árið 2013

  • Hagnaður ársins 2013nam 188,9 milljónum króna.
  • Eiginfjárhlutfall skv. lögum um fjármálafyrirtæki var 16,0% en skal að lágmarki vera 8%
  • Hreinar vaxtatekjur voru 437,4 milljónir króna eða 43,8% af vaxtatekjum, samanborið við 593,8 milljónir (47,9% af vaxtatekjum) hreinar vaxtatekjur á árinu 2012.
  • Laun og annar rekstrarkostnaður nam 373,6 milljónum króna samanborið við 312,7 milljónir árið 2012
  • Framlög í afskriftarreikning útlána, og matsbreytingar hlutafjár voru 51,0 milljónir króna en voru 444,9 milljónir 2012.
  • Eignir námu 14.872 milljónum króna og hafa lækkað um 1.866 milljónir frá árinu 2012.  Þar af voru útlán og fullnustueignir 11.570 milljónir.
  • Skuldir námu 12.458 milljónum króna og lækkuðu um 2.091 milljón á árinu 2012.
  • Veittar ábyrgðir utan efnahagsreiknings námu 22,6 milljónum króna.

Um ársreikninginn

Hagnaður ársins nam 188,9 milljónum króna, samanborið við 152,8 milljón króna tap á árinu 2012.  Skýrist þetta fyrst og fremst með því að 5. júní 2013 staðfesti Hæstiréttur Íslands úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur í máli Byggðastofnunar gegn Sparisjóði Reykjavíkur og nágrennis hf., þar sem krafa Byggðastofnunar að fjárhæð 271,3 milljónir króna var viðurkennd sem forgangskrafa. Höfðu 238 milljónir króna af þeirri kröfu áður verið afskrifaðar.

Alþingi samþykkti í fjárlögum 2012 heimild til að efla eigið fé Byggðastofnunar um allt að 2.000 milljónir króna.  Af því framlagi voru 1.750 milljónir króna greiddar til stofnunarinnar í janúar 2012 en eftirstöðvarnar, 250 milljónir króna greiddar í janúar 2013.

Eiginfjárhlutfall Byggðastofnunar var 16,0% í lok árs.

Horfur

Fyrir Héraðsdómi Norðurlands vestra var á árinu 2013 rekið dómsmál þar sem tekist var á um lögmæti þess að skuldbreyta verðtryggðum lánum í íslenskum krónum í lán í erlendum myntum með útgáfu viðauka.  Dómur féll þar 29. nóvember 2013, þar sem fallist var á lögmæti svo skuldbreyttra lána Byggðastofnunar og hefur dómnum ekki verið áfrýjað.  Uppreiknuð lán stefnanda nema nú um 210,1 milljónum króna en verði fallist á kröfur hans munu þau lækka um allt að 50%  Samsvarandi útlán hjá stofnuninni nema að kröfuvirði 856,8 milljónum króna. Ekki hefur verið fært sérstakt varúðarframlag á afskriftarreikning vegna þessa.  Að mati lögmanns Byggðastofnunar benda dómar Hæstaréttar, sem fallið hafa í sambærilegum málum (sbr. t.d. Hrd. 498/2013), eindregið til þess að Byggðastofnun muni verða sýknuð ef málinu verður áfrýjað.

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar veitir Aðalsteinn Þorsteinsson, forstjóri Byggðastofnunar í síma   455 5400 eða á netfanginu adalsteinn@byggdastofnun.is


Attachments

Fréttatilkynning v ársreiknings 2013.pdf Ársreikningur 2013.pdf