Ársreikningur Grindavíkurbæjar fyrir árið 2013

Ársreikningur Grindavíkurbæjar og stofnana fyrir árið 2013 verður lagður fram til fyrri umræðu í bæjarstjórn Grindavíkur þann 29. apríl 2014.


Samkvæmt lögum ber að fjalla um ársreikninginn á tveimur fundum í bæjarstjórn og verður seinni  umræða þann 13. maí 2014 og á þeim fundi er samþykkt bæjarstjórnar á ársreikningnum fyrirhuguð.

   Ef bæjarstjórn samþykkir ársreikninginn í fyrirliggjandi mynd og við afgreiðslu og samþykkt bæjarstjórnar koma ekki fram mikilvægar viðbótarupplýsingar, sem geta haft áhrif á gerð ársreikningsins og/eða niðurstöður hans, munu endurskoðendur árita ársreikninginn með fyrirvaralausri áritun.


Attachments

Grindavíkurbær Ársreikningur 2013 fyrri umræða.pdf Ársreikningur Grindavíkurbæjar 2013, samantekt.pdf