Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar 2015 og þriggja ára áætlun 2016-2018

Jafnvægi í rekstri


Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar fyrir árið 2015 var lögð fram í bæjarstjórn Akureyrar í dag. Rekstarafkoma A- og B hluta er áætluð jákvæð um 437,7 milljónir króna eftir fjármagnsliði og tekjuskatt. Jafnframt var lögð fram þriggja ára áætlun áranna 2016-2018.

 

Fjárhagsáætlunin er sett fram samkvæmt reikningsskilum sveitarfélaga. Starfseminni er skipt upp í tvo hluta, A-hluta annars vegar og B-hluta hins vegar. Til A-hluta telst starfsemi sem að hluta eða öllu leyti er fjármögnuð með skatttekjum. Um er að ræða Aðalsjóð, Fasteignir Akureyrarbæjar, Framkvæmdamiðstöð og Eignasjóð gatna. Til B-hluta teljast fjárhagslega sjálfstæð fyrirtæki sem að hálfu eða meirihluta eru í eigu sveitarfélagsins en rekstur þeirra er að stofni til fjármagnaður með þjónustutekjum. Fyrirtækin eru: Félagslegar íbúðir,  Strætisvagnar Akureyrabæjar, Öldrunarheimili Akureyrabæjar, Framkvæmdasjóður Akureyrarbæjar, Bifreiðastæðasjóður Akureyrabæjar, Hafnarsamlag Norðurlands, Norðurorka hf.,  Byggingasjóður Náttúrufræðistofnunar og Gjafasjóður Öldrunarheimila Akureyrarbæjar.

 

Samkvæmt yfirliti um sjóðstreymi samstæðunnar mun veltufé frá rekstri nema 2.551,9 millj.kr.. Fjárfestingarhreyfingar nema samtals 2.280,7 millj.kr. Fjármögnunarhreyfingar munu nema samtals 44,2 millj.kr. Áætlað er að afborgun langtímalána nemi 1.182 millj.kr. Ný langtímalán eru áætluð 1.140 millj.kr. Handbært fé sveitarfélagsins í árslok er áætlað 1.633 millj.kr.

 

Skatttekjur eru áætlaðar 9.069 millj. kr, tekjur frá jöfnunarsjóði 2.287 millj. kr. og aðrar tekjur 8.287 millj kr.  Heildartekur samstæðunnar eru því áætlaðar  19.643 millj. kr.

 

Heildarlaunagreiðslur ásamt launatengdum gjöldum hjá samstæðunni eru áætlaðar 10.722 millj.kr. Laun og launatengd gjöld sveitarfélagsins, í hlutfalli við rekstrartekjur þess, eru áætluð 54,6%. Annar rekstrarkostnaður er áætlaður 29,3% af rekstrartekjum. Skatttekjur sveitarfélagsins og tekjur frá jöfnunarsjóði eru áætlaðar 618 þús.kr. á hvern íbúa en tekjur samtals 1.069 þús.kr. á hvern íbúa. Árið 2014 eru skatttekjurnar ásamt jöfnunarsjóði áætlaðar 577 þús.kr. á hvern íbúa og heildartekjurnar 1.041 þús.kr.

 

Áætlað er að eignir sveitarfélagsins í efnahagsreikningi 31.12.2015 verði bókfærðar á 39.608 millj.kr., þar af eru veltufjármunir 3.861 millj.kr. Skuldir sveitarfélagsins með lífeyrisskuldbindingum nemi þá samkvæmt efnahagsreikningi 23.266 millj.kr., þar af verði skammtímaskuldir 3.521 millj.kr. Áætlað er að heildareignir á hvern íbúa muni nema 2.156 þús. kr. og heildarskuldir 1.165 þús. kr. Veltufjárhlutfallið er áætlað 1,10 í árslok 2015, en er áætlað 1,09 í árslok 2014. Bókfært eigið fé er áætlað að nemi 16.341 millj.kr í árslok 2015. Eiginfjárhlutfall í árslok er áætlað að nemi 41%.

 

Samkvæmt sveitarstjórnarlögum skal fjalla um fjárhagsáætlun á tveimur fundum í sveitarstjórn og verður hún til umfjöllunar í bæjarstjórn Akureyrar í dag 4. nóvember til fyrri umræðu  og við síðari umræðu þann 16. desember nk.

 

  

Meðfylgjandi í pdf-skjali er frumvarp að fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar fyrir árið 2015, samstæðan ásamt öllum fyrirtækjum bæjarins sem undir áætlunina falla. Auk fjárhagsáætlunarinnar fyrir árið 2015 er birt í frumvarpinu þriggja ára áætlun vegna áranna 2016-2018.

 

Akureyri 4. nóvember  2014.

Nánari upplýsingar veitir Dan Brynjarsson, fjármálastjóri, í síma 460 1000.


Attachments

Fa 2015 Lagt fram til fyrri umræðu 20141104.pdf