Leiðrétting á frétt er birtist 24. febrúar 2015 – arðsréttindadagur verður 24. mars en ekki 25. mars.
Aðalfundur Sláturfélags Suðurlands svf. verður haldinn föstudaginn 20. mars 2015 á Goðalandi Fljótshlíð og hefst kl. 15:00.
Dagskrá:
- Setning aðalfundar, kosning starfsmanna fundarins og könnun á mætingu fulltrúa.
- Skýrsla stjórnar félagsins.
- Starfsemi félagsins á liðnu ári.
- Ársreikningur félagsins fyrir liðið starfsár skýrður.
- Skýrsla skoðunarmanna.
- Tillaga stjórnar um vexti af stofnsjóði og greiðslu arðs.
- Umræður um skýrslu stjórnar, skýrslu um starfsemi félagsins, ársreikning og tillögu um vexti og arð af stofnsjóði.
- Afgreiðsla ársreiknings og tillagna um vexti og arð af stofnsjóði.
- Kosin stjórn félagsins.
- Kosning endurskoðenda og skoðunarmanna.
- Ákvörðun um þóknun stjórnar, skoðunarmanna og greiðslur til fulltrúa.
- Umræður og atkvæðagreiðsla um önnur mál, löglega upp borin.
Tillögur frá félagsaðilum sem bera á fram á aðalfundi þurfa að vera komnar skriflega í hendur stjórnarinnar eigi síðar en 14 dögum fyrir aðalfund. Framboð til stjórnar og varastjórnar skal hafa borist skriflega í hendur stjórnarinnar eigi síðar en þremur vikum fyrir aðalfund í samræmi við 2. mgr. 27. gr. samþykkta félagsins.
Tillögur:
Liður 6 í dagskrá: Tillaga stjórnar um vexti af stofnsjóði og greiðslu arðs.
Stjórn Sláturfélags Suðurlands svf. leggur til við aðalfund að greiddur verði 11% arður af B-deild stofnsjóðs þar af er verðbótaþáttur 1% skv. 1. mgr. 14. gr. samþykkta félagsins, alls kr. 19.808.177,- eða 0,11 kr. á hvern útgefin hlut. Jafnframt að reiknaðir verði 5% vextir á höfuðstól inneigna í A-deild stofnsjóðs, alls kr. 15.797.339,- Arðleysisdagur er 23. mars og arðréttindadagur er 24. mars. Greiðsludagur arðs er 17. apríl n.k.