Byggðastofnun - Ársreikningur 2014


Ársreikningur Byggðastofnunar 2014

Ársreikningur Byggðastofnunar fyrir árið 2014, var staðfestur af stjórn stofnunarinnar 13. mars 2015.

Hagnaður ársins nam 349,2 milljónum króna.  Eiginfjárhlutfall í lok júní skv. eiginfjárákvæðum laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki var 20,2% en var 16,1% í lok árs 2013.

Um stofnunina gilda lög um Byggðastofnun nr. 106/1999 og reglugerð nr. 347/2000.  Hlutverk Byggðastofnunar er að vinna að eflingu byggðar og atvinnulífs á landsbyggðinni.  Í samræmi við hlutverk sitt vinnur stofnunin að undirbúningi, skipulagi og fjármögnun verkefna og veitingu lána með það að markmiði að treysta byggð, efla atvinnu og stuðla að nýsköpun í atvinnulífi. Fjármögnun verkefna skal eftir föngum vera í samstarfi við aðra.  Byggðastofnun fylgist með þróun byggðar í landinu, m.a. með gagnasöfnun og rannsóknum. Stofnunin skipuleggur og vinnur að atvinnuráðgjöf í samstarfi við atvinnuþróunarfélög, sveitarfélög og aðra. Stofnunin getur gert eða látið gera áætlanir um þróun byggðar og atvinnulífs í þeim tilgangi að treysta búsetu og atvinnu í byggðum landsins. Stofnunin getur einnig tekið þátt í gerð svæðisskipulags samkvæmt skipulagslögum.

Helstu niðurstöður úr ársreikningi Byggðastofnunar 2014

  • Hagnaður ársins nam 349,2 milljónum króna.
  • Eiginfjárhlutfall skv. lögum um fjármálafyrirtæki var 20,2% en skal að lágmarki vera 8%
  • Hreinar vaxtatekjur voru 399,4 milljónir króna eða 49,1% af vaxtatekjum, samanborið við 437,4 milljónir króna (43,8% af vaxtatekjum) hreinar vaxtatekjur árið 2013.
  • Laun og annar rekstrarkostnaður nam 387,1 milljónum króna samanborið við 373,6 milljónir árið 2013.
  • Eignir námu 13.917 milljónum króna og hafa lækkað um 955,4 milljónir frá árslokum 2013.  Þar af voru útlán og fullnustueignir 10.822 milljónir.
  • Skuldir námu 11.265 milljónum króna og lækkuðu um 1.304,6 milljónir á árinu.
  • Veittar ábyrgðir utan efnahagsreiknings námu 18,8 milljónum króna.

Um ársreikninginn

Hagnaður ársins nam 349,2 milljónum króna.  Skýrist hagnaður tímabilsins fyrst og fremst á lægri framlögum á afskriftarreikning útlána, matsbreytingu hlutabréfa og sölu fullnustueigna. 

Eiginfjárhlutfall Byggðastofnunar var 20,2% í lok tímabilsins.

Horfur

Eiginfjárstaða stofnunarinnar er sterk og gefur henni færi á að vera öflugur bakhjarl fyrirtækja á landsbyggðinni.

Umsóknir um nýjar lánveitingar jukust á árinu 2014 og er gert ráð fyrir áframhaldandi aukningu á lánveitingum á árinu 2015.

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar veitir Aðalsteinn Þorsteinsson, forstjóri Byggðastofnunar í síma 455 5400 eða á netfanginu adalsteinn@byggdastofnun.is


 

Lykiltölur úr ársreikningi

 

  2014 2013 2012 2011 2010
  Þús. kr. Þús. kr. Þús. kr. Þús. kr. Þús. kr.
Rekstrarreikningur          
Vaxtatekjur 813.793 998.367 1.239.328 1.325.644 1.211.531
Vaxtagjöld 414.371 561.002 645.570 685.712 677.608
Hreinar vaxtatekjur 399.422 437.365 593.757 639.933 533.922
Rekstrartekjur 448.940 559.846 193.296 319.051 228.635
Hreinar rekstrartekjur 848.362 997.211 787.054 958.983 762.558
           
Rekstrargjöld 499.145 808.294 939.827 1.194.695 3.390.472
Hagnaður (-tap) ársins 349.217 188.917 -152.773 -235.712 -2.627.914
           
Með rekstrargjöldum eru færð framlög í afskriftareikning útlána og matsbr. hlutafjár          
Framl. í afskriftarr. útlána og matsbr. hlutaf -117.243 50.960 444.940 710.772 2.894.164
           
Efnahagsreikningur 31.12.2014 31.12.2013 31.12.2012 31.12.2011 31.12.2010
Eignir          
Sjóður og kröfur á lánastofnanir 2.062.688 2.421.208 2.213.327 2.464.230 1.875.859
Útlán 10.821.632 11.570.492 13.421.549 14.214.991 14.063.814
Eignahlutir í félögum 902.395 809.599 763.001 881.276 951.483
Aðrar eignir 130.216 71.009 340.102 89.266 103.318
Eignir samtals 13.916.931 14.872.307 16.737.980 17.649.763 16.994.474
           
Skuldir og eigið fé          
Lántökur 11.161.775 12.458.421 14.549.688 17.137.891 17.229.307
Aðrar skuldir 103.500 111.448 74.769 245.578 263.161
Skuldir samtals 11.265.275 12.569.868 14.624.458 17.383.468 17.492.468
           
Eigið fé 2.651.656 2.302.439 2.113.522 266.295 -497.993
Skuldir og eigið fé samtals 13.916.931 14.872.307 16.737.980 17.649.763 16.994.474
           
Veittar ábyrgðir utan efnahagsreiknings 18.807 22.552 216.398 218.330 220.659
           
Sjóðstreymi 2014 2013 2012 2011 2010
Handbært fé (-til) frá rekstri 556.712 787.953 638.877 555.887 -1.621.193
Fjárfestingarhreyfingar 569.609 324.400 617.252 375.980 132.408
Fjármögnunarhreyfingar -1.484.841 -904.473 -1.507.031 -343.495 1.197.231
Hækkun/(-lækkun) á handbæru fé -358.520 207.880 -250.903 588.371 -291.554
Handbært fé í ársbyrjun 2.421.208 2.213.327 2.464.230 1.875.859 2.167.413
Handbært fé í árslok 2.062.688 2.421.208 2.213.327 2.464.230 1.875.859
           
Eiginfjárhlutfall samkvæmt lögum um lánastofnanir aðrar en viðskiptabanka og sparisjóði 20,20% 16,12% 12,55% 1,34% -2,40%

 


Attachments

Fréttatilkynning v ársreiknings 2014.pdf Ársreikningur 2014.pdf