Ársreikningur Norðurþings fyrir árið 2014


Rekstrarafkoma samstæðu Norðurþings

Ársreikningur Norðurþings fyrir árið 2014 hefur verið lagður fyrir bæjarstjórn til fyrri umræðu.

Rekstrartekjur sveitarfélagsins á árinu 2014 námu 2.975 milljónum króna samkvæmt samanteknum rekstrarreikningi A og B hluta.  Rekstrarniðurstaða sveitarfélagsins samkvæmt samanteknum rekstrarreikningi A og B hluta var 174 milljón króna verri en fjárhagsáætlanir gerðu ráð fyrir en samstæðan skilaði um 92 milljónum í tap.  Eigið fé samstæðu sveitarfélagsins í árslok nam 539 milljónum króna samkvæmt efnahagsreikningi.  Veltufé frá rekstri samstæðunnar nam um 310 milljónum króna.  Handbært fé í árslok nam 207 milljónum króna.  Á árinu 2014 var gjaldfært hjá málaflokknum félagsþjónusta sérstakt framlag um 22 milljón króna til reksturs Dvalarheimilis aldraðra sf., sem ekki var gert ráð fyrir í fjárhagsáætlun.  Á árinu 2014 var einnig gjaldfært hjá málaflokknum hreinlætismál sérstakt framlag um 25 milljónir króna til rekstrar Sorpsamlags Þingeyinga ehf., sem ekki var gert ráð fyrir í fjárhagsáætlun. 

Laun og launatengd gjöld á árinu námu alls 1.747 milljónum króna en starfsmannafjöldi hjá sveitarfélaginu nam 219 stöðugildum.  Rekja má launahækkun fram yfir áætlanir til nýgerðra kjarasamninga en hækkun á lífeyrisskuldbindingu var 126 milljónir umfram áætlun.  Íbúafjöldi sveitarfélagsins 1. desember 2014 var 2.806 og fækkaði um 20 frá fyrra ári.

Skuldahlutfall skv. reglum um fjárhagsleg viðmið sveitarfélaga fór úr 179% árið 2013 í 160% árið 2014. 

Ársreikningur Norðurþings fyri árið 2014 er tilbúinn til endurskoðunar og afgreiðslu í bæjarstjórn. 

Nánari upplýsingar veitir Kristján Þór Magnússon, bæjarstjóri Norðurþings í síma 464-6100

Húsavík, 21. apríl 2015


Attachments

Ársreikningur Norðurþings árið 2014.pdf