Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar 2016

Jafnvægi í rekstri


Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar fyrir árið 2016 var lögð fram í bæjarráði Akureyrar í dag. Rekstarafkoma A- og B hluta er áætluð jákvæð um 367,5 milljónir króna eftir fjármagnsliði og tekjuskatt. Jafnframt var lögð fram þriggja ára áætlun áranna 2017-2019.

 

Fjárhagsáætlunin er sett fram samkvæmt reikningsskilum sveitarfélaga. Starfseminni er skipt upp í tvo hluta, A-hluta annars vegar og B-hluta hins vegar. Til A-hluta telst starfsemi sem að hluta eða öllu leyti er fjármögnuð með skatttekjum. Um er að ræða Aðalsjóð, Fasteignir Akureyrarbæjar, Framkvæmdamiðstöð og Eignasjóð gatna. Til B-hluta teljast fjárhagslega sjálfstæð fyrirtæki sem að hálfu eða meirihluta eru í eigu sveitarfélagsins en rekstur þeirra er að stofni til fjármagnaður með þjónustutekjum. Fyrirtækin eru: Félagslegar íbúðir,  Strætisvagnar Akureyrabæjar, Öldrunarheimili Akureyrabæjar, Framkvæmdasjóður Akureyrarbæjar, Bifreiðastæðasjóður Akureyrabæjar, Hafnarsamlag Norðurlands, Norðurorka hf.,  Byggingasjóður Náttúrufræðistofnunar og Gjafasjóður Öldrunarheimila Akureyrarbæjar.

 

Samkvæmt yfirliti um sjóðstreymi samstæðunnar mun veltufé frá rekstri nema 2.308 millj.kr.. Fjárfestingarhreyfingar nema samtals 3.098 millj.kr. Fjármögnunarhreyfingar munu nema samtals 673 millj.kr. Áætlað er að afborgun langtímalána nemi 1.124 millj.kr. Ný langtímalán eru áætluð 1.550 millj.kr. Handbært fé sveitarfélagsins í árslok er áætlað 2.053 millj.kr.

 

Skatttekjur eru áætlaðar 9.805 millj. kr, tekjur frá jöfnunarsjóði 2.662 millj. kr. og aðrar tekjur 8.660 millj kr.  Heildartekjur samstæðunnar eru því áætlaðar 21.127 millj. kr.

 

Heildarlaunagreiðslur ásamt launatengdum gjöldum hjá samstæðunni eru áætlaðar 11.672 millj.kr. Laun og launatengd gjöld sveitarfélagsins, í hlutfalli við rekstrartekjur þess, eru áætluð 55,2%. Annar rekstrarkostnaður er áætlaður 30,1% af rekstrartekjum. Skatttekjur sveitarfélagsins og tekjur frá jöfnunarsjóði eru áætlaðar 674 þús.kr. á hvern íbúa en tekjur samtals 1.142 þús.kr. á hvern íbúa. Árið 2015 eru skatttekjurnar ásamt jöfnunarsjóði áætlaðar 620 þús.kr. á hvern íbúa og heildartekjurnar 1.077 þús.kr.

 

Áætlað er að eignir sveitarfélagsins í efnahagsreikningi 31.12.2016 verði bókfærðar á 42.009 millj.kr., þar af eru veltufjármunir 3.728 millj.kr. Skuldir sveitarfélagsins með lífeyrisskuldbindingum nemi þá samkvæmt efnahagsreikningi 24.815 millj.kr., þar af verði skammtímaskuldir 4.056 millj.kr. Áætlað er að heildareignir á hvern íbúa muni nema 2.271 þús. kr. og skuldir 1.229 þús. kr. Veltufjárhlutfallið er áætlað 0,92 í árslok 2016, en er áætlað 1,04 í árslok 2015. Bókfært eigið fé er áætlað að nemi 17.195 millj.kr í árslok 2016. Eiginfjárhlutfall í árslok er áætlað að nemi 41%.

 

Samkvæmt sveitarstjórnarlögum skal fjalla um fjárhagsáætlun á tveimur fundum í sveitarstjórn og verður hún til umfjöllunar í bæjarstjórn Akureyrar  3. nóvember til fyrri umræðu  og við síðari umræðu þann 1. desember nk.

 

 

Meðfylgjandi í pdf-skjali er frumvarp að fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar fyrir árið 2016, samstæðan ásamt A hluta, málaflokkayfirliti og framkvæmdayfirliti. Auk fjárhagsáætlunarinnar fyrir árið 2016 er birt í frumvarpinu þriggja ára áætlun vegna áranna 2017-2019.

 

Akureyri 29. október  2015.

Nánari upplýsingar veitir Dan Brynjarsson, fjármálastjóri, í síma 460 1000.


Attachments

Áætlun 2016-2019.pdf