Fjármál Reykjaneshafnar


Vísað er til tilkynninga Reykjanesbæjar og Reykjaneshafnar frá 11. febrúar 2016 þar sem fram kom m.a. að Reykjaneshöfn hyggðist óska eftir framlengdum greiðslufresti og kyrrstöðutímabili til 15. mars. Í dag, 15. febrúar, rennur út greiðslufrestur sem veittur var þann 1. febrúar.

Kröfuhafar Reykjaneshafnar hafa samþykkt að framlengja greiðslufrest og kyrrstöðutímabil til og með 15. mars 2016.