Ársreikningar Akureyrarbæjar 2015

Viðunandi rekstrarafgangur samstæðu en rekstur aðalsjóðs þungur


Rekstur samstæðu Akureyrarbæjar var viðunandi á árinu og varð rekstrarafgangur meiri en áætlanir höfðu gert ráð fyrir. Rekstur Aðalsjóðs var þó afar þungur. Ársreikningar fyrir árið 2015 voru lagðir fram í bæjarráði í dag. Samkvæmt sveitarstjórnarlögum skal fjalla um ársreikninginn á tveimur fundum í sveitarstjórn og verður hann til umfjöllunar í bæjarstjórn Akureyrar 19. apríl og 3. maí nk.

Ársreikningurinn er settur fram samkvæmt reikningsskilum sveitarfélaga. Starfseminni er skipt upp í tvo hluta, A-hluta annars vegar og B-hluta hins vegar. Til A-hluta telst starfsemi sem að hluta eða öllu leyti er fjármögnuð með skatttekjum. Um er að ræða Aðalsjóð, Fasteignir Akureyrarbæjar, Framkvæmdamiðstöð og Eignasjóð gatna. Til B–hluta teljast fjárhagslega sjálfstæð fyrirtæki sem að hálfu eða meirihluta eru í eigu sveitarfélagsins en rekstur þeirra er að stofni til fjármagnaður með þjónustutekjum. Fyrirtækin eru: Félagslegar íbúðir Akureyrarbæjar, Strætisvagnar Akureyrabæjar, Öldrunarheimili Akureyrabæjar, Framkvæmdasjóður Akureyrarbæjar, Bifreiðastæðasjóður Akureyrabæjar, Hafnarsamlag Norðurlands, Norðurorka hf, Byggingasjóður Náttúrufræðistofnunar og Gjafasjóður Öldrunarheimila Akureyrarbæjar.

Rekstur samstæðu Akureyrarbæjar var viðunandi og rekstrarniðurstaða ársins í meginatriðum eins og fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir.  Heildarniðurstaða var þó verulega betri en áætlanir gerðu ráð fyrir. Rekstrarniðurstaða samstæðunnar fyrir fjármagnsliði og tekjuskatt var jákvæð um 955 milljónir króna en áætlun hafði gert ráð fyrir 790 milljóna króna rekstarafgangi. Heildarniðurstaða ársins var jákvæð um 1.122 millj. kr. en áætlun gerði ráð fyrir 593 millj. kr neikvæðri niðurstöðu.  Meginskýring á þessum mikla mun er verulega aukinn hagnaður Norðurorku vegna sölu Þeistareykja ehf. til Landsvirkjunar.

Samkvæmt yfirliti um sjóðstreymi nam veltufé frá rekstri 2.269 millj. kr. sem er 748 millj. kr. meira en áætlun hafði gert ráð fyrir og 82 millj. kr. hærri upphæð en árið áður. Handbært fé frá rekstri nam 2.476 millj. kr. Fjárfestingarhreyfingar námu samtals nettó 498 millj. kr. Fjármögnunarhreyfingar námu samtals nettó 288 millj. kr. Afborgun langtímalána nam 1.023 millj. kr. en ný langtímalán voru 813 millj. kr. Hækkun á handbæru fé á árinu nam 1.689 millj. kr. og nam handbært fé sveitarfélagsins í árslok 3.511 millj. kr.

Heildarlaunagreiðslur án launatengdra gjalda og hækkun  lífeyrisskuldbindinga hjá samstæðunni voru 9.192 millj. króna. Fjöldi stöðugilda var að meðaltali 1.525 sem er fækkun um 27 stöðugildi frá árinu áður. Laun og launatengd gjöld sveitarfélagsins í hlutfalli við rekstrartekjur þess voru 58,2%. Annar rekstrarkostnaður var 30,6% af rekstrartekjum. Skatttekjur sveitarfélagsins voru 644 þús. kr. á hvern íbúa en tekjur samtals 1.130 þús. kr. á hvern íbúa. Árið 2014 voru skatttekjurnar 590 þús. kr. á hvern íbúa og heildartekjurnar 1.073 þús. kr.

Þrátt fyrir stöðugleika í rekstri var niðurstaða A-hluta neikvæð um 469 millj. kr. en fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir neikvæðri niðurstöðu um 631 millj. kr. Sér í lagi var rekstur aðalsjóðs þungur innan A-hluta með 1.185 millj. kr. halla sem skýrist að stórum hluta af miklum kjarasamningsbundnum launahækkunum, starfsmati og hækkun á lífeyrisskuldbindingum. Á móti kom að lítil verðbólga og hagstæð gengisþróun urðu til þess að fjármagskostnaður var mun lægri en áætlanir gerðu ráð fyrir.

Samkvæmt efnahagsreikningi eru eignir sveitarfélagsins bókfærðar á 41.735 millj. kr., þar af eru veltufjármunir 5.791 millj. kr. Skuldir sveitarfélagsins með lífeyrisskuldbindingum námu samkvæmt efnahagsreikningi 23.403 millj. kr., þar af eru skammtímaskuldir 3.659 millj. kr. Fjárhagur Akureyrarbæjar er traustur og nam skuldaviðmið í árslok samkvæmt reglum Eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaga 94% en var 105% árið áður.

Veltufjárhlutfallið var 1,58 í árslok en var 1,12 árið áður. Bókfært eigið fé nam 18.333 millj. kr í árslok. Eiginfjárhlutfall var 44% af heildarfjármagni en var 43% árið áður.



Nánari upplýsingar veitir Dan Brynjarsson, fjármálastjóri, í síma 460 1000.


Attachments

Akureyrarbær ársreikningur árið 2015 með undirritun bæjarráðs.pdf