Fjármál Reykjanesbæjar og Reykjaneshafnar.


 

Vísað er til tilkynninga Reykjanesbæjar og Reykjaneshafnar um viðræður við kröfuhafa um endurskipulagningu fjárhags Reykjanesbæjar og stofnana hans.

Í tilkynningu í kauphöll kom fram að á fundi bæjarstjórnar Reykjanesbæjar sem haldinn var þann 3. maí sl. hefði verið upplýst um að heildarsamkomulag við alla kröfuhafa um fjárhagslega endurskipulagningu fjárhags Reykjanesbæjar og stofnana hans væri ekki í sjónmáli. Var samþykkt að tilkynna Eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga að samningar væri ekki í sjónmáli. Kom jafnframt fram í tilkynningunni að öllu óbreyttu kæmi til greiðslufalls á skuldbindingum Reykjaneshafnar.

Á fundi bæjarstjórnar Reykjanesbæjar sem haldinn var þann 7. júní samþykkti meirihluti bæjarstjórnar eftirfarandi bókun:

„Í bréfi sem eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga sendi bæjarstjórn Reykjanesbæjar þ. 18. maí sl. bregst nefndin við tilkynningu Reykjanesbæjar frá 499. bæjarstjórnarfundi þ. 3. maí sl. um að samningar við kröfuhafa séu ekki í sjónmáli. Í bréfinu kemur fram að það sé mat eftirlitsnefndar að greiðslubyrði samstæðu Reykjanesbæjar umfram greiðslugetu sé svo mikil að ljóst sé að ekki muni úr rætast í bráð. Þá uppfylli samstæðan hvorki viðmið 64. gr. sveitarstjórnarlaga, bráðabirgðaákvæðis II né 16. gr. reglugerðar nr. 502/2012. Því telji nefndin að ekki verði hjá því komist að leggja til við innanríkisráðherra að Reykjanesbæ verði skipuð fjárhaldsstjórn, sbr. 86. gr. sveitarstjórnarlaga. Áður en endanlega ákvörðun verður tekin um hvort slík tillaga verði lögð fyrir innanríkisráðherra er bæjarstjórn gefið tækifæri á að koma á framfæri athugasemdum sínum eða frekari upplýsingum sem hún telur þörf á. Í því skyni vill bæjarstjórn upplýsa eftirlitsnefndina um eftirfarandi:

Frá því að framangreind tilkynning var send eftirlitsnefndinni þ. 4. maí sl. hefur viðræðum við kröfuhafa verið fram haldið og því enn von til þess að frjálsir samningar um breytingar á skuldum Reykjanesbæjar náist. Slíkir samningar myndu um leið létta á greiðslubyrði þess og gera því kleift að leggja fram raunhæfa aðlögunaráætlun eins og lög gera ráð fyrir.

Því óskar bæjarstjórn eftir lengri fresti sem nýttur yrði til þess að ná ásættanlegri niðurstöðu.“

Til viðbótar beiðni um frekari frest af hálfu Eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaga  hefur stjórn Reykjaneshafnar samþykkt að óska eftir greiðslufresti og kyrrstöðutímabili við kröfuhafa Reykjaneshafnar meðan á viðræðum aðila stendur.

Nánari upplýsingar veita Kjartan Már Kjartansson bæjarstjóri og Halldór Hermannsson hafnarstjóri.