Byggðastofnun - Árshlutauppgjör janúar - júní 2016


Árshlutareikningur Byggðastofnunar janúar-júní 2016

Árshlutareikningur Byggðastofnunar fyrir tímabilið janúar-júní 2016, var staðfestur af stjórn stofnunarinnar 26. ágúst 2016.

Hagnaður tímabilsins nam 45,1 milljón króna.  Eiginfjárhlutfall í lok júní skv. eiginfjárákvæðum laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki var 21,73% en var 20,56% í lok árs 2015.

Um stofnunina gilda lög um Byggðastofnun nr. 106/1999 og reglugerð nr. 347/2000. Hlutverk Byggðastofnunar er að efla byggð og atvinnulíf með sérstakri áherslu á jöfnun tækifæra allra landsmanna til atvinnu og búsetu. Í samræmi við hlutverk sitt undirbýr, skipuleggur og fjármagnar stofnunin verkefni og veitir lán með það að markmiði að treysta byggð, efla atvinnu og stuðla að nýsköpun í atvinnulífi. Fjármögnun verkefna skal eftir föngum vera í samstarfi við aðra. Stofnunin skipuleggur og vinnur að atvinnuráðgjöf í samstarfi við atvinnuþróunarfélög, sveitarfélög og aðra haghafa.  Byggðastofnun fylgist með þróun byggðar í landinu, m.a. með gagnasöfnun og rannsóknum. Stofnunin getur gert eða látið gera áætlanir um þróun byggðar og atvinnulífs í þeim tilgangi að treysta búsetu og atvinnu í byggðum landsins.

Helstu niðurstöður úr árshlutareikningi Byggðastofnunar janúar-júní 2016

  • Hagnaður tímabilsins nam 45,1 milljónum króna.
  • Eiginfjárhlutfall skv. lögum um fjármálafyrirtæki var 21,73% en skal að lágmarki vera 8%
  • Hreinar vaxtatekjur voru 217,2 milljónir króna eða 51,1% af vaxtatekjum, samanborið við 220,8 milljónir króna (48,9% af vaxtatekjum) hreinar vaxtatekjur árið 2015.
  • Laun og annar rekstrarkostnaður nam 224,5 milljónum króna samanborið við 199,1 milljón árið 2015.
  • Eignir námu 13.214 milljónum króna og hafa lækkað um 1.203 milljónir frá árslokum 2015.  Þar af voru útlán og fullnustueignir 10.668 milljónir.
  • Skuldir námu 10.418 milljónum króna og lækkuðu um 1.248 milljónir frá árslokum 2015.

Um árhlutareikninginn

Skýrist hagnaður tímabilsins fyrst og fremst á hærri rekstrartekjum en á sama tímabili 2015.. 

Horfur

Eiginfjárstaða stofnunarinnar er áfram sterk og gefur henni færi á að vera öflugur bakhjarl fyrirtækja á landsbyggðinni.

Með bréfi Fjármálaeftirlitsins dagsettu 1. mars 2016 var Byggðastofnun tilkynnt að FME hefði ákveðið að samanlögð krafa um eiginfjárauka sem Byggðastofnun bæri að viðhalda frá og með 1. janúar 2016 væri 1% sveiflujöfnunarauki sem taki gildi 12 mánuðum eftir ákvörðun Fjármálaeftirlitsins.  Að auki ber Byggðastofnun að viðhalda 1% verndunarauka frá 1. janúar 2016 samkvæmt 84. gr. e laga um fjármálafyrirtæki, sbr. 84. gr. a sömu laga.  Verndunarauki samkvæmt nefndum lagaákvæðum hækkar í áföngum, fyrst í 1.75% hinn 1. júní 2016 og svo í 2.5% hinn 1. janúar 2017.  Hinni samanlögðu kröfu skal jafnframt viðhaldið á samstæðugrunni. Miðað við hækkun verndunaraukans 1. júní 2016 og 1. janúar 2017 og gildistöku sveiflujöfnunaraukans 1. mars 2017 verður hin samanlagða krafa að öllu óbreyttu 3,5%.

Eins og að ofan greinir er eiginfjárstaða Byggðastofnunar sterk og því mun hún geta uppfyllt þessa eiginfjárkröfu.

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar veitir Aðalsteinn Þorsteinsson, forstjóri Byggðastofnunar í síma 455 5400 eða á netfanginu adalsteinn@byggdastofnun.is


 

Lykiltölur úr árshlutareikningi og samanburður við fyrri ár

 

 

  30.06.2016 2015 30.06.2015 2014 30.06.2014 2013
  Þús. kr. Þús. kr. Þús. kr. Þús. kr. Þús. kr. Þús. kr.
Rekstrarreikningur            
Vaxtatekjur 425.326 837.787 451.645 813.793 414.984 998.367
Vaxtagjöld 208.151 382.996 230.862 414.371 242.244 561.002
Hreinar vaxtatekjur 217.175 454.791 220.784 399.422 172.741 437.365
Rekstrartekjur 213.738 385.120 179.502 448.940 213.706 559.846
Hreinar rekstrartekjur 430.912 839.911 400.285 848.362 386.446 997.211
             
Rekstrargjöld 385.829 741.021 363.794 499.145 311.139 808.294
Hagnaður 45.084 98.891 36.491 349.217 75.307 188.917
             
Með rekstrargjöldum eru færð framlög í afskriftareikning            
útlána og matsbreyting hlutabréfa 20.130 61.012 -4.301 -117.243 -13.380 50.960
             
Efnahagsreikningur 30.06.2016 31.12.2015 30.06.2015 31.12.2014 30.06.2014 31.12.2013
Eignir            
Sjóður og kröfur á lánastofnanir 1.352.940 3.081.232 1.664.478 2.062.688 2.393.656 2.421.208
Útlán 10.668.476 10.307.529 10.688.090 10.821.632 11.086.999 11.570.492
Eignahlutir í félögum 1.123.238 947.504 966.761 902.395 910.838 809.599
Aðrar eignir 68.912 80.511 73.209 130.216 114.779 71.009
Eignir samtals 13.213.566 14.416.775 13.392.538 13.916.931 14.506.272 14.872.307
             
Skuldir og eigið fé            
Lántökur 10.260.559 11.495.402 10.549.834 11.161.775 11.962.190 12.458.421
Aðrar skuldir 157.377 170.826 154.557 103.500 166.336 111.448
Skuldir samtals 10.417.936 11.666.228 10.704.392 11.265.275 12.128.526 12.569.868
             
Eigið fé 2.795.630 2.750.547 2.688.147 2.651.656 2.377.746 2.302.439
Skuldir og eigið fé samtals 13.213.566 14.416.775 13.392.538 13.916.931 14.506.272 14.872.307
             
Veittar ábyrgðir utan efnahagsreiknings 0 0 16.450 18.807 20.360 22.552
             
Sjóðstreymi 30.06.2016 2015 30.06.2015 2014 30.06.2014 2013
Handbært fé frá rekstri 77.254 207.394 38.940 556.712 224.716 787.953
Fjárfestingarhreyfingar -510.014 373.684 212.022 569.609 257.989 324.400
Fjármögnunarhreyfingar -1.295.531 437.466 -649.171 -1.484.841 -510.256 -904.473
Hækkun/(-lækkun) á handbæru fé -1.728.291 1.018.544 -398.210 -358.520 -27.551 207.880
Handbært fé í ársbyrjun 3.081.232 2.062.688 2.062.688 2.421.208 2.421.208 2.213.327
Handbært fé í lok tímabils 1.352.940 3.081.232 1.664.478 2.062.688 2.393.656 2.421.208
             
Eiginfjárhlutfall samkvæmt lögum um fjármálafyrirtæki 21,73% 21,56% 21,38% 20,20% 16,36% 16,00%

 


Attachments

Fréttatilkynning v árshlutauppgjörs 30.06.2016.pdf Árshlutauppgjör 2016.06.30.pdf