Byggðastofnun fær einkunnina i.AAA með stöðugum horfum


Íslenska lánshæfismatsfyrirtækið Reitun ehf. hefur gefið út lánshæfismat áByggðastofnun í fyrsta skipti. Einkunnin er i.AAA með stöðugum horfum en i.AAA er besta einkunn sem Reitun gefur. Einkunnargjöf Reitunar miðar við innlendar einkunnir í stað alþjólegra einkunna og er því i. bætt fyrir framan bókstafina. Ríkissjóður fær viðmiðunareinkunnina i.AAA sem er besta mögulega einkunn sem Reitun gefur. Aðrir útgefendur eru metnir út frá þeirri einkunn. Reitun flokkar einkunnir frá i.AAA til i.BBB3 sem fjárfestingahæfar eignir.

Byggðastofnun gerði samning við Reitun á árinu um greiningu og mat á lánshæfi fyrirtækisins gagnvart fjárfestum á skuldabréfamarkaði. Með lánshæfismati fá fjárfestar álit sérfróðra óháðra aðila til stuðnings við ákvörðun sína um kaup á skuldabréfunum. 

Einföld ríkisábyrgð vegur þyngst í i.AAA lánshæfiseinkunn Reitunar á skuldbindingum Byggðastofnunar. Að mati Reitunar er óumdeilt að Byggðastofnun njóti sömu ríkisábyrgðar og t.d. Íbúðalánasjóður og að ríkissjóður muni styrkja félagið með nægu eigin fé ef þörf er á því. Á árunum 2010-2013 lagði ríkissjóður fram 6,6 ma.kr. eiginfjárframlag til stofnunarinnar og eiginfjárhlutfall Byggðastofnunar er í dag 21,73% skv. lögum nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki. 

Byggðastofnun er ríkisstofnun, í eigu og á ábyrgð íslenska ríkisins. Hlutverk stofnunarinnar er að efla byggð og atvinnulíf með sérstakri áherslu á jöfnun tækifæra allra landsmanna til atvinnu og búsetu. Útlánastarfsemi Byggðastfonunar felst einkum í að tryggja litlum og meðalstórum fyrirtækjum utan höfuðborgarsæðisins aðgang að lánsfé.


Attachments

2016 Byggdastofnun.pdf