Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar 2017

Jafnvægi í rekstri samstæðunnar


Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar fyrir árið 2017 er lögð fram í bæjarstjórn Akureyrar í dag. Rekstarafkoma A- og B-hluta er áætluð jákvæð um 273,1 milljón króna eftir fjármagnsliði og tekjuskatt. Jafnframt var lögð fram þriggja ára áætlun áranna 2018-2020.

Fjárhagsáætlunin er sett fram samkvæmt reikningsskilum sveitarfélaga. Starfseminni er skipt upp í tvo hluta, A-hluta annars vegar og B-hluta hins vegar. Til A-hluta telst starfsemi sem að hluta eða öllu leyti er fjármögnuð með skatttekjum. Um er að ræða Aðalsjóð, Fasteignir Akureyrarbæjar, Framkvæmdamiðstöð og Eignasjóð gatna. Til B-hluta teljast fjárhagslega sjálfstæð fyrirtæki sem að hálfu eða meirihluta eru í eigu sveitarfélagsins en rekstur þeirra er að stofni til fjármagnaður með þjónustutekjum. Fyrirtækin eru: Félagslegar íbúðir,  Strætisvagnar Akureyrabæjar, Öldrunarheimili Akureyrabæjar, Framkvæmdasjóður Akureyrarbæjar, Bifreiðastæðasjóður Akureyrabæjar, Hafnarsamlag Norðurlands, Norðurorka hf.,  Byggingasjóður Náttúrufræðistofnunar og Gjafasjóður Öldrunarheimila Akureyrarbæjar.

Samkvæmt yfirliti um sjóðstreymi samstæðunnar mun veltufé frá rekstri nema 2.325 millj.kr. Fjárfestingarhreyfingar nema samtals 3.489 millj.kr. Fjármögnunarhreyfingar munu nema samtals 1.105 millj.kr. Áætlað er að afborganir langtímalána nemi 979 millj.kr. Ný langtímalán eru áætluð 2.130 millj.kr. Handbært fé sveitarfélagsins í árslok er áætlað 2.036 millj.kr.

Skatttekjur samstæðu eru áætlaðar 10.775 millj.kr, tekjur frá jöfnunarsjóði 2.740 millj.kr. og aðrar tekjur 9.625 millj.kr.  Heildartekjur samstæðunnar eru því áætlaðar 23.140 millj.kr.

Heildarlaunagreiðslur ásamt launatengdum gjöldum hjá samstæðunni eru áætlaðar 13.403 millj.kr. Meðal launagjalda hefur verið færð hækkun vegna lífeyrisskuldbindinga, hækkun á mótframlagi í opinberu lífeyrirssjóðina og framlag til að mæta ófyrirséðum launahækkunum á næsta ári. Samtals nema þessi útgjöld 790 milljónum króna í áætluninni. Laun og launatengd gjöld sveitarfélagsins, í hlutfalli við rekstrartekjur þess, eru áætluð 57,9%. Annar rekstrarkostnaður er áætlaður 29,1% af rekstrartekjum. Skatttekjur sveitarfélagsins og tekjur frá jöfnunarsjóði eru áætlaðar 727 þús.kr. á hvern íbúa en tekjur samtals 1.244 þús.kr. á hvern íbúa. Árið 2016 eru skatttekjurnar ásamt jöfnunarsjóði áætlaðar skv. útkomuspá 687 þús.kr. á hvern íbúa og heildartekjurnar 1.166 þús.kr.

Áætlað er að eignir sveitarfélagsins í efnahagsreikningi 31.12.2017 verði bókfærðar á 44.199 millj.kr., þar af eru veltufjármunir 4.317 millj.kr. Skuldir sveitarfélagsins með lífeyrisskuldbindingum nemi þá samkvæmt efnahagsreikningi 26.111 millj.kr., þar af verði skammtímaskuldir 5.623 millj.kr. Áætlað er að heildareignir á hvern íbúa muni nema 2.377 þús.kr. og skuldir 1.260 þús.kr. Veltufjárhlutfallið er áætlað 0,77 í árslok 2017, en er áætlað 1,22 í árslok 2016. Bókfært eigið fé er áætlað að nemi 18.088 millj.kr í árslok 2017. Eiginfjárhlutfall í árslok er áætlað að nemi 41%.

Samkvæmt sveitarstjórnarlögum skal fjalla um fjárhagsáætlun á tveimur fundum í sveitarstjórn og verður hún til fyrri umræðu í dag í bæjarstjórn Akureyrar og til síðari umræðu þann 6. desember nk.

Meðfylgjandi í pdf-skjali er frumvarp að fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar fyrir árið 2017, samstæðan ásamt A-hluta, málaflokkayfirliti og framkvæmdayfirliti. Auk fjárhagsáætlunarinnar fyrir árið 2017 er birt í frumvarpinu þriggja ára áætlun vegna áranna 2018-2020 ásamt útkomuspá fyrir árið 2016.

 

Nánari upplýsingar veitir Dan Brynjarsson, fjármálastjóri, í síma 460 1000.


Attachments

Akureyrarbær fyrri umræða.pdf