Skuldabréfaútboð – BYG 16 1


Miðvikudaginn 30. nóvember hélt Byggðastofnun útboð á nýjum skuldabréfaflokki BYG 16 1. Fór útboðið fram með hollensku sniði. Fer uppgjör viðskipta fram þriðjudaginn 6. desember 2016.

Alls bárust tilboð í BYG 16 1 að nafnverði kr. 4.370.000.000. Boðin var ávöxtunarkrafa á bilinu 2,90% til 3,29%. Ákveðið var að taka tilboðum að nafnvirði kr. 2.000.000.000 á ávöxtunarkröfunni 3,10%.

Skuldabréfin bera 3,08% fasta verðtryggða vexti, og bera jafnar greiðslur. Lokagjalddagi þeirra er 6. desember 2031. Stefnt er að töku skuldabréfanna til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland fyrir árslok 2016.

Markaðir Íslandsbanka hf. höfðu umsjón með sölu skuldabréfanna og töku þeirra til viðskipta.  

Nánari upplýsingar veitir:
Magnús Helgason, forstöðumaður rekstrarsviðs
Sími: 455 5400
e-mail: 
magnus@byggdastofnun.is