Dagskrá:
-
Setning aðalfundar, kosning starfsmanna fundarins og könnun á mætingu fulltrúa.
-
Skýrsla stjórnar félagsins.
-
Starfsemi félagsins á liðnu ári.
-
Ársreikningur félagsins fyrir liðið starfsár skýrður.
-
Skýrsla skoðunarmanna.
-
Tillaga stjórnar um vexti af stofnsjóði og greiðslu arðs.
-
Umræður um skýrslu stjórnar, skýrslu um starfsemi félagsins, ársreikning og tillögu um vexti og arð af stofnsjóði.
-
Afgreiðsla ársreiknings og tillagna um vexti og arð af stofnsjóði.
-
Kosin stjórn félagsins.
-
Kosning endurskoðenda og skoðunarmanna.
-
Ákvörðun um þóknun stjórnar, skoðunarmanna og greiðslur til fulltrúa.
- Umræður og atkvæðagreiðsla um önnur mál, löglega upp borin.
Tillögur frá félagsaðilum sem bera á fram á aðalfundi þurfa að vera komnar skriflega í hendur stjórnarinnar eigi síðar en 14 dögum fyrir aðalfund. Framboð til stjórnar og varastjórnar skal hafa borist skriflega í hendur stjórnarinnar eigi síðar en þremur vikum fyrir aðalfund í samræmi við 2. mgr. 27. gr. samþykkta félagsins.
Tillögur:
Liður 6 í dagskrá: Tillaga stjórnar um vexti af stofnsjóði og greiðslu arðs.
Stjórn Sláturfélags Suðurlands svf. leggur til við aðalfund að greiddur verði 12,1% arður af B-deild stofnsjóðs þar af er verðbótaþáttur 2,1% skv. 1. mgr. 14. gr. samþykkta félagsins, alls kr. 21.788.994,- eða 0,12 kr. á hvern útgefin hlut. Jafnframt að reiknaðir verði 5% vextir á höfuðstól inneigna í A-deild stofnsjóðs, alls kr. 17.027.514,- Arðleysisdagur er 20. mars og arðréttindadagur er 21. mars. Greiðsludagur arðs er 26. apríl n.k.