Ársreikningur Akureyrarbæjar 2016

Vel viðunandi rekstur án gjaldfærslu lífeyrisskuldbindinga


Ársreikningur Akureyrarbæjar fyrir árið 2016 voru lagðir fram í bæjarráði í dag. Rekstur samstæðu Akureyrarbæjar litaðist mjög af hárri gjaldfærslu vegna breytinga á lífeyrisskuldbindingum og var samstæða Akureyrarbæjar rekin með 80 milljón króna halla sem er þó ríflega 600 milljónum króna betri árangur en fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir. Sjóðstreymi ársins er betra en síðasta ár, sérstaklega í A hluta.

Ársreikningurinn er settur fram samkvæmt lögum um reikningsskil sveitarfélaga. Starfseminni er skipt upp í tvo hluta, A-hluta annars vegar og B-hluta hins vegar. Til A-hluta telst starfsemi sem að hluta eða öllu leyti er fjármögnuð með skatttekjum.  Til B–hluta teljast fjárhagslega sjálfstæð fyrirtæki sem að hálfu eða að meirihluta eru í eigu sveitarfélagsins en rekstur þeirra er að stofni til fjármagnaður með þjónustutekjum.

Samstæða Akureyrarbæjar var rekin með 80 milljón króna halla þegar tekið hefur verið tillit til ríflega 1.242 milljón króna gjaldfærslu vegna lífeyrisskuldbindinga á árinu. Gjaldfærslan setur verulegan svip á niðurstöður ársreikningsins.  Stafar hún m.a. af verulegri hækkun á vísitölu lífeyrisskuldbindinga opinberra starfsmanna, tekin er inn ný lífslíkatafla og lágri ávöxtun eigna lífeyrissjóða á síðasta ári. Rekstur samstæðu Akureyrarbæjar var að öðru leyti nokkuð viðunandi og rekstrarniðurstaða ársins í meginatriðum eins og fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir.    Rekstrarniðurstaða samstæðunnar fyrir fjármagnsliði og tekjuskatt var jákvæð um 755 milljónir króna en áætlun hafði gert ráð fyrir 754 milljóna króna rekstrarafgangi. Heildarniðurstaða var þó verulega betri en áætlanir gerðu ráð fyrir þrátt fyrir 80 millj. kr  neikvæða niðurstöðu en áætlun gerði ráð fyrir 687 millj. kr neikvæðri niðurstöðu.  Meginskýring á þessum mun er lægri fjármagnskostnaður samstæðunnar en áætlun ársins gerði ráð fyrir. 

Samkvæmt yfirliti um sjóðstreymi nam veltufé frá rekstri 2.639 millj. kr. sem er 1.284 millj. kr. meira en áætlun hafði gert ráð fyrir og 370 millj. kr. hærri upphæð en árið áður. Handbært fé frá rekstri nam 2.212 millj. kr. Fjárfestingahreyfingar námu samtals nettó 2.340 millj. kr. Fjármögnunarhreyfingar námu samtals nettó 704 millj. kr. Afborgun langtímalána nam 959 millj. kr. en ný langtímalán voru 245 millj. kr. Lækkun á handbæru fé á árinu nam 832 millj. kr. og nam handbært fé sveitarfélagsins í árslok 2.678 millj. kr.  Veltufé frá rekstri í hlutfalli við tekjur nam 11,7% í samstæðunni og 8,5% í A hluta.

Heildarlaunagreiðslur án launatengdra gjalda og hækkun  lífeyrisskuldbindinga hjá samstæðunni voru 9.868 millj. króna. Fjöldi stöðugilda var að meðaltali 1.522 sem er fækkun um 3 stöðugildi frá árinu áður. Laun og launatengd gjöld sveitarfélagsins í hlutfalli við rekstrartekjur þess voru 60,4%. Annar rekstrarkostnaður var 29,5% af rekstrartekjum. Skatttekjur sveitarfélagsins voru 695 þús. kr. á hvern íbúa en tekjur samtals 1.219 þús. kr. á hvern íbúa. Árið 2015 voru skatttekjurnar 644 þús. kr. á hvern íbúa og heildartekjurnar 1.130 þús. kr. á hvern íbúa.

Niðurstaða A-hluta var neikvæð um 340 millj. kr. en fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir neikvæðri niðurstöðu um 629 millj. kr. Gjaldfærsla lífeyrisskuldbindinga nam 1.140 millj. kr í A hluta sem er 840 millj. kr   umfram áætlun. Á móti kom að lítil verðbólga og hagstæð gengisþróun urðu til þess að fjármagskostnaður var mun lægri en áætlanir gerðu ráð fyrir.  

Samkvæmt efnahagsreikningi voru eignir sveitarfélagsins í árslok 2016 bókfærðar á 42.488 millj. kr. en þar af voru veltufjármunir 5.367 millj. kr. Skuldir sveitarfélagsins með lífeyrisskuldbindingum námu samkvæmt efnahagsreikningi 23.910 millj. kr. en þar af voru skammtímaskuldir 3.398 millj. kr. Fjárhagur Akureyrarbæjar er traustur og nam skuldaviðmið í árslok samkvæmt reglum Eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaga 87% en var 94% árið áður.

Veltufjárhlutfallið var 1,58 í árslok 2016 eins og árið áður. Bókfært eigið fé nam 18.578 millj. kr í árslok. Eiginfjárhlutfall var 44% af heildarfjármagni eins og árið áður.

Samkvæmt sveitarstjórnarlögum skal fjalla um ársreikninginn á tveimur fundum í sveitarstjórn og verður hann til umfjöllunar í bæjarstjórn Akureyrar 21. mars og 4. apríl nk.

 

 

Nánari upplýsingar veitir Dan Brynjarsson, sviðsstjóri fjársýslusviðs, í síma 460 1000.


Attachments

Ársreikningur Akureyrarbæjar 2016 til umræðu í bæjarstjórn.pdf