Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar 2018

Jákvæð afkoma í rekstri bæjarins


Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar fyrir árið 2018 var lögð fram í bæjarráði í dag. Rekstarafkoma A- og B-hluta er áætluð jákvæð um 963,2 milljón króna eftir fjármagnsliði og tekjuskatt. Jafnframt var lögð fram þriggja ára áætlun áranna 2019-2021.

 

Fjárhagsáætlunin er sett fram samkvæmt reikningsskilum sveitarfélaga. Starfseminni er skipt upp í tvo hluta, A-hluta annars vegar og B-hluta hins vegar. Til A-hluta telst starfsemi sem að hluta eða öllu leyti er fjármögnuð með skatttekjum. Um er að ræða Aðalsjóð, Fasteignir Akureyrarbæjar, Framkvæmdamiðstöð og Eignasjóð gatna. Til B-hluta teljast fjárhagslega sjálfstæð fyrirtæki sem að hálfu eða meirihluta eru í eigu sveitarfélagsins en rekstur þeirra er að stofni til fjármagnaður með þjónustutekjum. Fyrirtækin eru: Félagslegar íbúðir,  Strætisvagnar Akureyrabæjar, Öldrunarheimili Akureyrabæjar, Framkvæmdasjóður Akureyrarbæjar, Bifreiðastæðasjóður Akureyrarbæjar, Hafnarsamlag Norðurlands, Norðurorka hf.,  Byggingasjóður Náttúrufræðistofnunar og Gjafasjóður Öldrunarheimila Akureyrarbæjar.

 

Samkvæmt yfirliti um sjóðstreymi samstæðunnar mun veltufé frá rekstri nema 3.084 millj.kr. Fjárfestingarhreyfingar nema samtals 4.192 millj.kr. Fjármögnunarhreyfingar munu nema samtals 771 millj.kr. Áætlað er að afborganir langtímalána nemi 2.811 millj.kr. Ný langtímalán eru áætluð 3.585 millj.kr. Handbært fé sveitarfélagsins í árslok er áætlað 1.897 millj.kr.

 

Skatttekjur samstæðu eru áætlaðar 11.520 millj.kr, tekjur frá jöfnunarsjóði 3.070 millj.kr. og aðrar tekjur 9.994 millj.kr.  Heildartekjur samstæðunnar eru því áætlaðar 24.584 millj.kr.

 

Heildarlaunagreiðslur ásamt launatengdum gjöldum hjá samstæðunni eru áætlaðar 14.070 millj.kr. Laun og launatengd gjöld sveitarfélagsins, í hlutfalli við rekstrartekjur þess, eru áætluð 57,2%. Annar rekstrarkostnaður er áætlaður 27,5% af rekstrartekjum. Skatttekjur sveitarfélagsins og tekjur frá jöfnunarsjóði eru áætlaðar 772 þús.kr. á hvern íbúa en tekjur samtals 1.301 þús.kr. á hvern íbúa. Árið 2017 eru skatttekjurnar ásamt jöfnunarsjóði áætlaðar skv. útkomuspá 726 þús.kr. á hvern íbúa og heildartekjurnar 1.227 þús.kr.

 

Áætlað er að eignir sveitarfélagsins í efnahagsreikningi 31.12.2018 verði bókfærðar á 45.753 millj.kr., þar af eru veltufjármunir 4.595 millj.kr. Skuldir sveitarfélagsins með lífeyrisskuldbindingum nemi þá samkvæmt efnahagsreikningi 25.696 millj.kr., þar af verði skammtímaskuldir 3.467 millj.kr. Áætlað er að heildareignir á hvern íbúa muni nema 2.421 þús.kr. og skuldir 1.162 þús.kr. Veltufjárhlutfallið er áætlað 1,33 í árslok 2018, en er áætlað 0,91 í árslok 2017. Bókfært eigið fé er áætlað að nemi 20.056 millj.kr í árslok 2018. Eiginfjárhlutfall í árslok er áætlað að nemi 44%.

 

Samkvæmt sveitarstjórnarlögum skal fjalla um fjárhagsáætlun á tveimur fundum í sveitarstjórn og verður hún til fyrri umræðu  í bæjarstjórn Akureyrar þriðjudaginn 7. nóvember og til síðari umræðu þann 5. desember nk.

 

Meðfylgjandi í pdf-skjali er frumvarp að fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar fyrir árið 2018, samstæðan ásamt A-hluta, málaflokkayfirliti og framkvæmdayfirliti. Auk fjárhagsáætlunarinnar fyrir árið 2018 er birt í frumvarpinu þriggja ára áætlun vegna áranna 2019-2021 ásamt útkomuspá fyrir árið 2017 og rauntölur vegna ársins 2016.

 

Akureyri 2. nóvember  2017.
Nánari upplýsingar veitir Dan Brynjarsson, sviðsstjóri fjársýslusviðs, í síma 460 1000.

 

 


Attachments

Fjarhagsaaetlun2018-2021_fyrri_umraeda.pdf