REYKJAVIK, Ísland, Jan. 19, 2018 (GLOBE NEWSWIRE) -- Leiðandi hagvísir Analytica (e. Composite Leading Indicator) hækkaði í desember fimmta mán. í röð, nú um 0,4%. Vísbendingar eru um að hagvöxtur aukist á ný snemma á þessu ári.
Fimm af sex undirliðum hækka frá í nóvember. Mesta framlag til hækkunar mælist í verðmæti fiskafla og væntingavísitölu. Langtímauppleitni mikilvægra undirþátta er enn sterk. Áfram eru áhættuþættir í ytra umhverfi sem ógnað gætu hagvexti einkum tengdir stöðunni í alþjóðastjórnmálum.
Hagvísirinn er vísitala sem gefur vísbendingu um efnahagsumsvif að sex mánuðum liðnum. Það er hlutverk vísitölunnar að veita skýra sýn á efnahagshorfur og vara tímanlega við viðsnúningi í efnahagsumsvifum. Vísitalan er reiknuð á grundvelli sömu aðferðafræði og annars staðar þar sem sambærilegar vísitölur eru reiknaðar en sérstaklega er tekið mið af verklagi OECD.
Leiðandi hagvísir Analytica er samansettur úr sex undirþáttum af mismunandi toga. Um er að ræða aflamagn, debetkortaveltu, ferðamannafjölda, heimsvísitölu hlutabréfa, innflutning og væntingavísitölu Gallup. Í desember hækka þrír af sex undirþáttum frá fyrra ári. Frá í nóv. hækka fimm af sex undirþáttum.
Hugmyndin að baki vísitölunni er sú að framleiðsla hefur aðdraganda. Vísitalan er reiknuð á grundvelli þátta sem mælast í upphafi framleiðsluferilsins og/eða veita vísbendingar um eftirspurn eftir vörum og þjónustu. Til að unnt sé að auka framleiðslu þarf t.d. að afla aðfanga og stofna til fjárfestinga.
Leiðandi hagvísir Analytica hækkar um 0,4% í desember og tekur gildið 101,9, sjá töflu 1. Sú tala á að gefa vísbendingu um framleiðslu sex mánuðum síðar þ.e. í júní 2018. Hagvísirinn tekur gildið 100 þegar búist er við að landsframleiðsla sé í takt við langtímaleitni.
Tafla 1. Leiðandi hagvísir Analytica 2016-2017 | |||||||
Breyting (%) | Vísbend- | ||||||
Vísitala | í mánuði | frá fyrra ári | ing fyrir | ||||
2016 | |||||||
desember | 99.9 | -0.4 | % | -1.0 | % | júní 2017 | |
2017 | |||||||
janúar | 99.6 | -0.3 | % | -1.4 | % | júlí | |
febrúar | 99.6 | 0.0 | % | -1.4 | % | ágúst | |
mars | 99.7 | 0.1 | % | -1.3 | % | sept. | |
apríl | 99.5 | -0.2 | % | -1.4 | % | okt. | |
maí | 99.2 | -0.3 | % | -1.7 | % | nóv. | |
júní | 98.9 | -0.3 | % | -2.0 | % | des. | |
júlí | 98.8 | -0.1 | % | -2.0 | % | jan. 2018 | |
ágúst | 99.2 | 0.5 | % | -1.5 | % | feb. | |
september | 100.0 | 0.8 | % | -0.7 | % | mars | |
október | 100.8 | 0.8 | % | 0.3 | % | apríl | |
nóvember | 101.5 | 0.6 | % | 1.2 | % | maí | |
desember | 101.9 | 0.4 | % | 2.0 | % | júní |
Birting leiðandi hagvísis Analytica fyrir janúar er áformuð 27/2 2018.
Nánari upplýsingar veitir Yngvi Harðarson hagfræðingur
Sími: 527 8890 - Tölvupóstur yngvi@analytica.is