Ársreikningur Fjarðabyggðar 2017 tekinn til fyrri umræðu í bæjarstjórn


Fimmtudaginn 22. mars 2018 fer fram fyrri umræða í bæjarstjórn Fjarðabyggðar um ársreikning bæjarfélagsins fyrir árið 2017. Ársreikningurinn hefur verið áritaður af bæjarráði og bæjarstjóra. Samkvæmt sveitarstjórnarlögum skal fjalla um ársreikninginn á tveimur fundum í bæjarstjórn. Áformað er að ársreikningurinn verði afgreiddur við síðari umræðu í bæjarstjórn þann 5. apríl næstkomandi.

Bæjarstjórn Fjarðabyggðar ákvað á árinu 2017 að taka inn í samstæðuuppgjör Fjarðabyggðar rekstur tveggja hjúkrunarheimila á Eskifirði og á Fáskrúðsfirði.  Áhrif hjúkrunarheimilanna eru nokkur á samanburð í ársreikningi við fjárhagsáætlun ársins og niðurstöðu ársins 2016.  Nánar er gerð grein fyrir þessum áhrifum í ársreikningnum sjálfum en heildaráhrif hjúkrunarheimilanna eru að tekjur verða um 441 millj. kr. hærri, rekstrargjöld 345 millj. kr. hærri og afskriftir 65 millj. kr. hærri en ella.

Á heildina litið er rekstrarafkoma Fjarðabyggðar góð og lækkar skuldaviðmið umfram áætlanir.  Skuldaviðmið samstæðu í lok ársins 2017 er 114%.  

Rekstrarniðurstaða ársins hjá samstæðu A og B hluta var jákvæð um 486 millj. kr. en rekstrarniðurstaða A hluta var jákvæð um 10 millj. kr.

Rekstrarniðurstaða, án afskrifta og fjármagnsliða, hjá samstæðu A og B hluta var jákvæð sem nam 1.322 millj. kr. á árinu.  Þar af var rekstrarniðurstaða í A hluta 516 millj. kr.  Framlegð eða EBITDA nam 19% hjá samstæðu og rúmlega 10% í A hluta.

Rekstrartekjur, samstæðu A og B hluta sveitarfélagsins, námu samtals 7.056 millj. kr. en þar af námu rekstrartekjur A hluta 5.044 millj. kr.  Til samanburðar voru rekstrartekjur samstæðu 6.209 millj. kr. árið 2016.

Rekstrargjöld, án afskrifta, í samstæðu A og B hluta námu 5.734 millj. kr. og þar af voru rekstrargjöld A hluta 4.528 millj. kr.  Breyting launa, lífeyrisskuldbindinga og launatengdra gjalda í samstæðu til hækkunar nam um 13% eða um 414 millj. kr. á milli áranna 2016 og 2017 og þar af í A hluta 150 millj. kr..  Annar rekstarkostnaður samstæðu hækkaði um 178 millj. kr. milli áranna 2016 og 2017 og nam 2.183 millj. kr. á árinu 2017.

Fjármagnsgjöld umfram fjármunatekjur, í samstæðu A og B hluta, námu 297 millj. kr. samanborið við 271 millj. kr. árið 2016.

Fjárfesting í samstæðu A og B hluta umfram söluverð rekstrarfjármuna, nam samtals 957 millj. kr. á árinu 2017 samanborið við 908 millj. kr. árið áður.  Helstu fjárfestingar ársins voru vegna hafnarmannvirkja og skólabygginga.

Afborganir langtímalána námu 462 millj. kr. á árinu og afborganir leiguskuldbindinga námu 109 millj. kr. á árinu eða samtals 571 millj. kr.  Greitt var upp skammtímalán að fjárhæð 650 millj. kr. og það endurfjármagnað með langtímaláni 2017.  Handbært fé lækkaði á árinu um 119 millj. kr. og nam 256 millj. kr. í árslok 2017.

Eignir sveitarfélagsins voru í lok árs 2017 samtals að fjárhæð 13.195 millj. kr., þar af 11.728 millj. kr.  fastafjármunir. Langtímaskuldir við lánastofnanir eru 5.132 millj. kr., leiguskuldir 62 millj. kr., skammtímaskuldir 1.538 millj. kr., lífeyrisskuldbinding 2.277 millj. kr. og næsta árs afborganir 487 millj. kr.  Heildarskuldir samstæðunnar lækka milli ára um 48 millj. kr.

Eigið fé samstæðu var 4.248 millj. kr. í árslok 2017 samanborið við 3.725 millj. kr. í árslok 2016.  Breytingin á eigin fé skýrist af rekstrarniðurstöðu ársins og endurmati á verðmæti lóða og lenda.

Skuldaviðmið Fjarðabyggðar og stofnana um áramótin 2017 er 114% en var 128% um áramótin 2016.  Skuldahlutfall Fjarðabyggðar er á sama hátt 127% um áramótin en var 143% í árslok 2016.  Samkvæmt reglugerð um fjárhagsleg viðmið sveitarfélaga skal hlutfallið ekki vera hærra en 150%. 

Í ársreikningi Fjarðabyggðar 2017 kemur styrkur sveitarfélagsins vel fram.  Rekstur A hluta Þarf enn að bæta til að auka sveigjanleika m.a. til að takast á við hugsanlegar sveiflur í tekjum sem og frekari fjárfestingar í innviðum samfélagsins.  Mikilvægt er að áfram verði unnið að rekstrarlegri hagræðingu og lækkun skulda sveitarfélagsins.

Sterkur tekjugrunnur, sem byggður er meðal annars á sterkum atvinnugreinum í sjávarútvegi, áliðnaði og þjónustugreinum, gefur á hinn bóginn fyrirheit um kraftmikið samfélag til framtíðar litið líkt og áður.

Nánari upplýsingar veita Páll Björgvin Guðmundsson bæjarstjóri og Snorri Styrkársson fjármálastjóri í síma 470-9000.


Ársreikningur Fjarðabyggðar 31.12.2017 undirritaður


Attachments

Ársreikningur Fjarðabyggðar 31.12.2017 undirritaður