Árshlutareikningur Byggðastofnunar janúar-júní 2018


Árshlutareikningur Byggðastofnunar fyrir tímabilið janúar-júní 2018, var staðfestur af stjórn stofnunarinnar 24. ágúst 2018.

Hagnaður tímabilsins nam 62,7 milljónum króna.  Eiginfjárhlutfall í lok júní skv. eiginfjárákvæðum laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki var 21,73% en var 23,57% í lok árs 2017.

Um stofnunina gilda lög um Byggðastofnun nr. 106/1999 og reglugerð nr. 347/2000. Hlutverk Byggðastofnunar er að efla byggð og atvinnulíf með sérstakri áherslu á jöfnun tækifæra allra landsmanna til atvinnu og búsetu. Í samræmi við hlutverk sitt undirbýr, skipuleggur og fjármagnar stofnunin verkefni og veitir lán með það að markmiði að treysta byggð, efla atvinnu og stuðla að nýsköpun í atvinnulífi. Fjármögnun verkefna skal eftir föngum vera í samstarfi við aðra. Stofnunin skipuleggur og vinnur að atvinnuráðgjöf í samstarfi við atvinnuþróunarfélög, sveitarfélög og aðra haghafa.  Byggðastofnun fylgist með þróun byggðar í landinu, m.a. með gagnasöfnun og rannsóknum. Stofnunin getur gert eða látið gera áætlanir um þróun byggðar og atvinnulífs í þeim tilgangi að treysta búsetu og atvinnu í byggðum landsins.

Helstu niðurstöður úr árshlutareikningi Byggðastofnunar janúar-júní 2018

  • Hagnaður tímabilsins nam 62,7 milljónum króna.
  • Eiginfjárhlutfall skv. lögum um fjármálafyrirtæki var 21,73% en skal að lágmarki vera 8% skv. lögum um fjármálafyrirtæki.  Þá skal stofnunin viðhalda 2,25% verndunarauka og 1,25% sveiflujöfnunarauka að auki sem hækkar í 1,75% frá 15. maí 2019
  • Hreinar vaxtatekjur voru 227,6 milljónir króna eða 44,4% af vaxtatekjum, samanborið við 214,1 milljónir króna (48,6% af vaxtatekjum) hreinar vaxtatekjur árið 2017.
  • Laun og annar rekstrarkostnaður nam 265,8 milljónum króna samanborið við 229,4 milljónir árið 2017.
  • Eignir námu 14.882 milljónum króna og hafa hækkað um 1.749 milljónir frá árslokum 2017.  Þar af voru útlán 12.078 milljónir samanborið við 10.464 milljónir í lok árs 2017.
  • Skuldir námu 11.812 milljónum króna og hækkuðu um 1.686 milljónir frá árslokum 2017.

Horfur
Eiginfjárstaða stofnunarinnar er áfram sterk og gefur henni færi á að vera öflugur bakhjarl fyrirtækja á landsbyggðinni.

Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar veitir Aðalsteinn Þorsteinsson, forstjóri Byggðastofnunar í síma 455 5400 eða á netfanginu adalsteinn@byggdastofnun.is


Lykiltölur úr árshlutareikningi og samanburður við fyrri ár

 30.6.2018201730.6.2017201630.6.20162015
 Þús. kr.Þús. kr.Þús. kr.Þús. kr.Þús. kr.Þús. kr.
Rekstrarreikningur      
Vaxtatekjur512.974855.106440.926805.887425.326837.787
Vaxtagjöld285.375428.828226.803375.330208.151382.996
Hreinar vaxtatekjur227.599426.278214.123430.558217.175454.791
Rekstrartekjur296.438549.588237.699509.380213.738385.120
Hreinar rekstrartekjur524.037975.866451.822939.937430.912839.911
       
Rekstrargjöld461.344876.235471.892782.821385.829741.021
Hagnaður (-tap) ársins62.69399.631-20.070157.11645.08498.891
       
Með rekstrargjöldum eru færð framlög í afskriftareikning útlána og matsbreyting hlutafjár 
Framl. í afskriftarr. útlána og matsbr. hlutaf.25.226111.17982.23983.18420.13061.012
       
Efnahagsreikningur30.6.201831.12.201730.6.201731.12.201630.6.201631.12.2015
Eignir      
Bankainnistæður1.188.2081.089.8611.709.5602.757.5421.352.9403.081.232
Útlán til viðskiptavina12.078.08410.463.65310.008.8239.679.57510.160.9669.638.018
Fullnustueignir330.010340.510385.010445.552507.510669.510
Veltuhlutabréf564.108594.926639.065683.414376.639372.768
Hlutdeildarfélög647.421576.288540.458499.258746.599574.736
Skuldunautar4.53514.1476.47018.6897.18525.127
Varanlegir rekstrarfjármunir69.41653.85862.16856.19461.72755.384
Eignir samtals14.881.78013.133.24413.351.55514.140.22313.213.56614.416.775
       
Skuldir og eigið fé      
Lántökur og skuldabréfaútgáfur11.641.7069.920.04510.303.45811.003.74110.260.55911.495.402
Óráðstöfuð framlög60.030130.85292.607141.78382.847120.629
Aðrar skuldir110.05775.05367.89687.03774.53050.197
Skuldir samtals11.811.79310.125.95110.463.96211.232.56110.417.93611.666.228
       
Eigið fé3.069.9873.007.2932.887.5932.907.6632.795.6302.750.547
Skuldir og eigið fé samtals14.881.78013.133.24413.351.55514.140.2232.795.63014.416.775
       
       
Sjóðstreymi30.6.2018201730.6.2017201630.6.20162015
Handbært fé (-til) frá rekstri-10.848290.075151.600241.76877.254207.394
Fjárfestingarhreyfingar-1.436.272-765.620-511.135-738.880-510.014373.684
Fjármögnunarhreyfingar1.545.468-1.192.136-688.446173.422-1.295.531437.466
Hækkun/(-lækkun) á handb. fé98.347-1.667.681-1.047.981-323.690-1.728.2911.018.544
Handbært fé í ársbyrjun1.089.8612.757.5422.757.5423.081.2323.081.2322.062.688
Handbært fé í árslok/lok tímabils1.188.2081.089.8611.709.5602.757.5421.352.9403.081.232
       
Eiginfjárhlutfall samkvæmt lögum um fjármálafyrirtæki21,73%23,57%23,06%22,74%21,73%21,56%

Viðhengi


Attachments

Fréttatilkynning v árshlutauppgjörs 30.06.2018 Byggðastofnun Árshlutareikningur 30.06.2018