Skuldabréfaútboð – BYG 19 1


Byggðastofnun hefur ákveðið að efna til útboðs á skuldabréfaflokknum BYG 19 1. Skuldabréfin eru verðtryggð með vísitölu neysluverðs og greiðast til baka með jöfnum greiðslum (e. annuity). Lokagjalddagi þeirra er 15. september 2033. Skuldabréfin bera einfalda ríkisábyrgð.

Útboðið verður haldið 24. janúar 2019. Útboðsaðferðin er „hollensk“, þ.e. hæsta samþykkta ávöxtunarkrafa (lægsta samþykkta verð) ræður söluverði. Skila þarf tilboðum til verðbréfamiðlunar Íslandsbanka fyrir kl. 16.00 á fyrrnefndum degi, í síma 440 4499 eða með tölvupósti til vbm@islandsbanki.is.

Stefnt er að því að taka tilboðum að fjárhæð allt að 2,5 milljarðar að nafnvirði. Byggðastofnun áskilur sér þó rétt til að hækka eða lækka fjárhæð útboðsins, taka hvaða tilboði sem er eða hafna þeim öllum.

Skuldabréfaflokkurinn verður skráður rafrænt hjá Nasdaq verðbréfamiðstöð 31. janúar 2019 og mun uppgjör fara fram þann sama dag. Skuldabréfin verða tekin til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland í byrjun febrúar 2019.

Vakin er athygli á lánshæfismati Reitunar á Byggðastofnun, en lánshæfismatið hljóðar upp á i.AAA með stöðugum horfum. Er það hæsta einkunn sem lánshæfismat Reitunar getur náð. Lánshæfismatið má nálgast á slóðinni: https://www.byggdastofnun.is/static/files/Skyrslur/byggdastofnun-juli-2017-lanshaefismat.pdf   

Íslandsbanki hf. hefur umsjón með útgáfu og útboði skuldabréfanna auk töku þeirra til viðskipta.

Nánari upplýsingar veitir:

Magnús Helgason, forstöðumaður rekstrarsviðs

Sími: 455 5400

Tölvupóstur: magnus@byggdastofnun.is