Föstudaginn 13. febrúar 2020 var aðalfundur Lykils fjármögnunar hf. settur í nýjum húsakynnum félagsins að Síðumúla 24, 108 Reykjavík kl. 10:00.
Helstu niðurstöður fundarins:
- Skýrsla stjórnar fyrir síðasta starfsár
Aðalfundur samþykkti skýrslu stjórnar samhljóða.
- Ársreikningur fyrir liðið starfsár
Aðalfundur samþykkti ársreikning vegna ársins 2019.
- Ákvörðun um ráðstöfun hagnaðar eða taps félagsins
Aðalfundur samþykkti tillögu stjórnar um að ekki verður greiddur arður til hluthafa.
- Tillögur til breytinga á samþykktum félagsins
Engar tillögur lágu fyrir um breytingar á samþykktum félagsins og eru þær því óbreyttar.
- Kosning stjórnar.
Kosningu stjórnar var frestað til framhaldsaðalfundar, en stefnt verður að því að halda hann eigi síðar en 31. mars 2020.
- Kosning endurskoðanda.
Tillaga stjórnar um að PricewaterhouseCoopers ehf. verði endurskoðunarfélag Lykils fjármögnunar hf. var samþykkt en þeir eru jafnframt endurskoðandi móðurfélags Lykils.
- Ákvörðun um þóknun stjórnar
Ákvörðun um þóknun stjórnar var frestað til framhaldsaðalfundar.
- Starfskjarastefna.
Aðalfundur samþykkti starfskjarastefnuna samhljóða.
- Önnur mál.
Önnur mál voru ekki borin upp og fundi slitið.
Nánari upplýsingar veitir Árni Huldar Sveinbjörnsson, s. 540 1700