Lokuðu útboði á félagslegum skuldabréfum Félagsbústaða lauk í gær, 12. ágúst 2020. Gefin voru út skuldabréf í flokknum FB100366 SB en skuldabréfin eru verðtryggð jafngreiðslubréf með lokagjalddaga 10. mars 2066.
Í heildina bárust tilboð upp á 4.010 m.kr. að nafnvirði á bilinu 1,19% - 1,30%.
Tilboðum að fjárhæð 1.750 m.kr. að nafnvirði var tekið á ávöxtunarkröfunni 1,24%. Heildarstærð flokksins verður 11.650 m.kr. að nafnvirði eftir stækkunina.
Fossar markaðir hafa umsjón með útgáfu og sölu skuldabréfanna sem og töku þeirra til viðskipta á markaði Nasdaq á Íslandi með sjálfbær skuldabréf.
Nánari upplýsingar veita:
Sigrún Árnadóttir
Framkvæmdastjóri Félagsbústaða
Sími: 520 1500
sigrun@felagsbustadir.is
Daði Kristjánsson
Fossar markaðir hf.
Sími: 840 4145
dadi.kristjansson@fossarmarkets.com