Árshlutareikningur Byggðastofnunar janúar - júní 2020


Árshlutareikningur Byggðastofnunar janúar-júní 2020
Árshlutareikningur Byggðastofnunar fyrir tímabilið janúar-júní 2020, var staðfestur af stjórn stofnunarinnar 28. ágúst 2020.
Tap tímabilsins nam 76,9 milljónum króna.  Eiginfjárhlutfall í lok júní skv. eiginfjárákvæðum laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki var 20,0%.
Um stofnunina gilda lög um Byggðastofnun nr. 106/1999 og reglugerð nr. 347/2000. Hlutverk Byggðastofnunar er að efla byggð og atvinnulíf með sérstakri áherslu á jöfnun tækifæra allra landsmanna til atvinnu og búsetu. Í samræmi við hlutverk sitt undirbýr, skipuleggur og fjármagnar stofnunin verkefni og veitir lán með það að markmiði að treysta byggð, efla atvinnu og stuðla að nýsköpun í atvinnulífi. Fjármögnun verkefna skal eftir föngum vera í samstarfi við aðra. Stofnunin skipuleggur og vinnur að atvinnuráðgjöf í samstarfi við atvinnuþróunarfélög, sveitarfélög og aðra haghafa.  Byggðastofnun fylgist með þróun byggðar í landinu, m.a. með gagnasöfnun og rannsóknum. Stofnunin getur gert eða látið gera áætlanir um þróun byggðar og atvinnulífs í þeim tilgangi að treysta búsetu og atvinnu í byggðum landsins.
Helstu niðurstöður úr árshlutareikningi Byggðastofnunar janúar-júní 2020

  • Tap tímabilsins nam 76,9 milljónum króna.
  • Eiginfjárhlutfall skv. lögum um fjármálafyrirtæki var 20,0% en skal að lágmarki vera 8% auk 2,5% verndunarauka, eða samtals 10,50%.
  • Hreinar vaxtatekjur voru 265 milljónir króna eða 41,8% af vaxtatekjum, samanborið við 253 milljónir króna (41,5% af vaxtatekjum) hreinar vaxtatekjur árið 2019.
  • Laun og annar rekstrarkostnaður nam 276,7 milljónum króna samanborið við 288,4 milljónir árið 2019.
  • Eignir námu 18.852 milljónum króna og hafa hækkað um 2.376 milljónir frá árslokum 2019.  Þar af voru útlán 15.796 milljónir samanborið við 13.039 milljónir í lok árs 2019.
  • Skuldir námu 15.712 milljónum króna og hækkuðu um 2.453 milljónir frá árslokum 2019.

Horfur
Eiginfjárstaða stofnunarinnar er áfram sterk og gefur henni færi á að vera öflugur bakhjarl fyrirtækja á landsbyggðinni.
Áhrif COVID-19 á rekstur Byggðastofnunar hafa að mestu komið fram í fjölda beiðna um frestun greiðslna á lánum viðskiptavina hennar.  Stofnunin er þátttakandi í samkomulagi viðskiptabanka, lánastofnana og lífeyrissjóða um tímabundna greiðslufresti á lánum fyrirtækja vegna heimsfaraldurs COVID-19 og gildir það til 30. september 2020. Það felur í sér að greiðslufrestir vegna áhrifa COVID-19 verði veittir til áramóta að hámarki.

Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar veitir Aðalsteinn Þorsteinsson, forstjóri Byggðastofnunar í síma 455 5400 eða á netfanginu adalsteinn@byggdastofnun.is


Lykiltölur úr árshlutareikningi og samanburður við fyrri ár

 30.6.2020201930.6.2019201830.6.20182017
 Þús. kr.Þús. kr.Þús. kr.Þús. kr.Þús. kr.Þús. kr.
Rekstrarreikningur      
Vaxtatekjur635.7711.172.444610.1061.098.491512.974855.106
Vaxtagjöld370.277662.991356.982630.646285.375428.828
Hreinar vaxtatekjur265.494509.454253.123467.845227.599426.278
Rekstrartekjur273.876645.486281.410616.573296.438549.588
Hreinar rekstrartekjur539.3701.154.940534.5331.084.418524.037975.866
       
Rekstrargjöld616.2951.059.525509.786971.031461.344876.235
Hagnaður (-tap) ársins-76.92595.41524.747113.38762.69399.631
       
Með rekstrargjöldum eru færð framlög í afskriftareikning útlána og matsbr. hlutafjár      
Framl. í afskriftarr. útlána og matsbr. hlutaf.161.543182.25878.868114.85125.226111.179
       
Efnahagsreikningur30.6.202031.12.201930.6.201931.12.201830.6.201831.12.2017
Eignir      
Bankainnistæður634.392474.6792.196.9401.102.4711.188.2081.089.861
Útlán til viðskiptavina15.795.67613.850.09813.039.45212.113.27412.078.08410.463.653
Fullnustueignir379.010441.010363.902347.510330.010340.510
Veltuhlutabréf609.080585.845587.355571.706564.108594.926
Hlutdeildarfélög679.808682.252674.017642.237647.421576.288
Skuldunautar14.98226.5996.02329.7134.53514.147
Varanlegir rekstrarfjármunir738.683414.975184.79479.40369.41653.858
Eignir samtals18.851.63116.475.45917.052.48314.886.31314.881.78013.133.244
       
Skuldir og eigið fé      
Lántökur og skuldabréfa-útgáfur15.275.84313.014.31813.678.56711.504.09511.641.7069.920.045
Óráðstöfuð framlög316.558119.71096.590123.59360.030130.852
Aðrar skuldir120.059125.336131.899137.944110.05775.053
Skuldir samtals15.712.46013.259.36413.907.05611.765.63311.811.79310.125.951
       
Eigið fé3.139.1703.216.0953.145.4273.120.6803.069.9873.007.293
Skuldir og eigið fé samtals18.851.63116.475.45917.052.48314.886.31314.881.78013.133.244
       
Sjóðstreymi30.6.2020201930.6.2019201830.6.20182017
Handbært fé (-til) frá rekstri74.505427.16375.290248.164-10.848290.075
Fjárfestingarhreyfingar-1.800.275-2.220.233-767.911-1.327.614-1.436.272-765.620
Fjármögnunarhreyfingar1.885.4831.165.2791.787.0921.092.0601.545.468-1.192.136
Hækkun/(-lækkun) á handb. fé159.713-627.7911.094.47012.61098.347-1.667.681
Handbært fé í ársbyrjun474.6791.102.4711.102.4711.089.8611.089.8612.757.542
Handbært fé í árslok/lok tímabils634.392474.6792.196.9401.102.4711.188.2081.089.861
       
Eiginfjárhlutfall samkvæmt lögum um fjármálafyrirtæki20,00%19,25%20,07%21,45%21,73%23,57%



Viðhengi



Attachments

Fréttatilkynning v árshlutauppgjörs 30.06.2020 Byggðastofnun Árshlutauppgjör 30.06.2020