Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar 2021 - 2024



Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar fyrir árið 2021 var lögð fram í bæjarráði í dag. Rekstrarafkoma A- og B-hluta er áætluð neikvæð um 1.067,9 milljónir króna eftir fjármagnsliði og tekjuskatt. Jafnframt var lögð fram þriggja ára áætlun áranna 2022-2024.

Skatttekjur samstæðunnar eru áætlaðar 12.918 millj.kr, tekjur frá jöfnunarsjóði 3.790 millj.kr. og aðrar tekjur 7.998 millj.kr. Heildartekjur eru því áætlaðar 24.706 millj.kr.

Samkvæmt yfirliti um sjóðstreymi samstæðunnar mun veltufé frá rekstri nema 2.356 millj.kr. Fjárfestingahreyfingar nema samtals 4.073 millj.kr. Fjármögnunarhreyfingar nema samtals 1.466 millj.kr. Áætlað er að afborganir langtímalána nemi 1.098 millj.kr. Ný langtímalán eru áætluð 2.650 millj.kr. Handbært fé sveitarfélagsins í árslok er áætlað 1.937 millj.kr.

Heildarlaunagreiðslur ásamt launatengdum gjöldum hjá samstæðunni eru áætlaðar 14.685 millj.kr. Laun og launatengd gjöld sveitarfélagsins, í hlutfalli við rekstrartekjur þess, eru áætluð 59,4%. Annar rekstrarkostnaður er áætlaður 27,5% af rekstrartekjum. Skatttekjur sveitarfélagsins og tekjur frá jöfnunarsjóði eru áætlaðar 851 þús.kr. á hvern íbúa en tekjur samtals 1.259 þús.kr. á hvern íbúa. Árið 2020, skv. útkomuspá, eru skatttekjur ásamt jöfnunarsjóði áætlaðar 832 þús.kr. á hvern íbúa og heildartekjur 1.366 þús.kr.

Ein meginbreyting á áætluninni frá fyrri árum er að ekki er gert ráð fyrir að Akureyrarbær reki Öldrunarheimili Akureyrar, heldur færist rekstur þeirra yfir til ríkisins á næsta ári. Hefur það áhrif á bæði tekjur og gjöld. Á árinu 2020 verður rekstrarkostnaður Öldrunarheimilanna nærri 3,2 milljarðar og tekjur 2,7 milljarðar króna.

Áætlað er að eignir sveitarfélagsins í efnahagsreikningi 31.12.2021 verði bókfærðar á 61.152 millj.kr. en þar af eru veltufjármunir 5.140 millj.kr. Skuldir sveitarfélagsins með lífeyrisskuldbindingum nema þá samkvæmt efnahagsreikningi 37.770 millj.kr. en þar af verða skammtímaskuldir 5.054 millj.kr. Áætlað er að heildareignir á hvern íbúa nemi 3.115 þús.kr. og heildarskuldir 1.639 þús.kr. Veltufjárhlutfallið er áætlað 1,02 í árslok 2021 en er áætlað 1,21 í árslok 2020. Bókfært eigið fé er áætlað að verði 23.381 millj.kr í árslok 2021. Eiginfjárhlutfall í árslok er áætlað að verði 38%.

Samkvæmt sveitarstjórnarlögum skal fjalla um fjárhagsáætlun á tveimur fundum í sveitarstjórn og verður hún til fyrri umræðu  í bæjarstjórn Akureyrarbæjar þriðjudaginn 1. desember og til síðari umræðu þann 15. desember nk.

Fjárhagsáætlunin er sett fram samkvæmt reikningsskilum sveitarfélaga. Starfseminni er skipt upp í tvo hluta, A-hluta annars vegar og B-hluta hins vegar. Til A-hluta telst starfsemi sem að hluta eða öllu leyti er fjármögnuð með skatttekjum. Um er að ræða Aðalsjóð, Fasteignir Akureyrarbæjar, Framkvæmdamiðstöð og Eignasjóð gatna. Til B-hluta teljast fjárhagslega sjálfstæð fyrirtæki sem að hálfu eða meirihluta eru í eigu sveitarfélagsins en rekstur þeirra er að stofni til fjármagnaður með þjónustutekjum. Fyrirtækin eru: Félagslegar íbúðir, Strætisvagnar Akureyrabæjar, Bifreiðastæðasjóður Akureyrarbæjar, Hlíðarfjall,  Hafnasamlag Norðurlands, Norðurorka hf., Byggingasjóður Náttúrufræðistofnunar og Gjafasjóður Öldrunarheimila Akureyrarbæjar.

Meðfylgjandi í pdf-skjali er frumvarp að fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar fyrir árið 2021, samstæðan ásamt A-hluta, málaflokkayfirliti og framkvæmdayfirliti. Auk fjárhagsáætlunarinnar fyrir árið 2021 er birt í frumvarpinu þriggja ára áætlun vegna áranna 2022-2024 ásamt útkomuspá fyrir árið 2020 og rauntölur vegna ársins 2019

Akureyri, 26. nóvember  2020.
Nánari upplýsingar veitir Dan Brynjarsson, sviðsstjóri fjársýslusviðs, í síma 460 1000.

Viðhengi



Attachments

Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar fyrri umræða - 1.12.2020