Byggðastofnun - Ársreikningur 2021


Ársreikningur Byggðastofnunar 2021

Ársreikningur Byggðastofnunar fyrir árið 2021, var staðfestur af stjórn stofnunarinnar 18. mars 2022.

Hagnaður ársins nam 167,3 milljónum króna. Eiginfjárhlutfall í lok árs skv. eiginfjárákvæðum laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki var 18,17%.

Um stofnunina gilda lög um Byggðastofnun nr. 106/1999 og reglugerð nr. 347/2000. Hlutverk Byggðastofnunar er að efla byggð og atvinnulíf með sérstakri áherslu á jöfnun tækifæra allra landsmanna til atvinnu og búsetu. Í samræmi við hlutverk sitt undirbýr, skipuleggur og fjármagnar stofnunin verkefni og veitir lán með það að markmiði að treysta byggð, efla atvinnu og stuðla að nýsköpun í atvinnulífi. Fjármögnun verkefna skal eftir föngum vera í samstarfi við aðra. Stofnunin skipuleggur og vinnur að atvinnuráðgjöf í samstarfi við atvinnuþróunarfélög, sveitarfélög og aðra haghafa. Byggðastofnun fylgist með þróun byggðar í landinu, m.a. með gagnasöfnun og rannsóknum. Stofnunin getur gert eða látið gera áætlanir um þróun byggðar og atvinnulífs í þeim tilgangi að treysta búsetu og atvinnu í byggðum landsins. Með breytingum á lögum um Byggðastofnun sem tóku gildi 1. júlí 2021 bættist við hlutverk stofnunarinnar það ákvæði að annast framkvæmd laga um póstþjónustu og hafa eftirlit með póstþjónustu eins og nánar er kveðið á um í lögum um það efni. Skrifstofa stofnunarinnar er á Sauðárkróki.

Helstu niðurstöður úr ársreikningi Byggðastofnunar 2021

  • Hagnaður ársins nam 167,3 milljónum króna.
  • Eiginfjárhlutfall skv. lögum um fjármálafyrirtæki var 18,17% en skal að lágmarki vera 8% auk 2,5% verndunarauka, eða samtals 10,50%. Þann 21. september 2021 ákvað Fjármálastöðuleikanefnd Seðlabanka Íslands að að hækka sveiflujöfnunarauka á fjármálafyrirtæki úr 0% í 2% og tekur ákvörðunin gildi 29. september 2022 og verður þá samanlögð eiginfjárkrafa Byggðastofnunar 12,50%.
  • Hreinar vaxtatekjur voru 560 milljónir króna eða 35,7% af vaxtatekjum, samanborið við 521 milljón króna (39,3% af vaxtatekjum) hreinar vaxtatekjur árið 2020.
  • Laun og annar rekstrarkostnaður nam 480 milljónum króna samanborið við 508 milljón árið 2020.
  • Eignir námu 22.049 milljónum króna og hafa hækkað um 1.764 milljónir frá árslokum 2020. Þar af voru útlán 18.625 milljónir samanborið við 16.835 milljónir í árslok 2020.
  • Skuldir námu 18.728 milljónum króna og hækkuðu um 1.597 milljónir á árinu.

Horfur

Eiginfjárstaða stofnunarinnar er áfram sterk og gefur henni færi á að vera öflugur bakhjarl atvinnulífs á landsbyggðinni.

Þó áhrif COVID-19 fari minnkandi gerir stofnunin ráð fyrir því að greiðslugeta viðskiptavina sem heimsfaraldurinn hefur haft mest áhrif á verði áfram takmörkuð sem geti leitt til áframhaldandi frystingar á greiðslum. Ekki er þó gert ráð fyrir að þær verði jafn umfangsmiklar og áður. Enn er óvissa um fjölda ferðamanna til Íslands og hvernig bólusetningar ganga fyrir sig í öðrum löndum sem haft getur áhrif á greiðslugetu viðskiptavina.

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar veitir Arnar Már Elíasson settur forstjóri Byggðastofnunar í síma 455 5400 eða á netfanginu arnar@byggdastofnun.is

Lykiltölur úr ársreikningi og samanburður við fyrri ár

 20212020201920182017
 Þús. kr.Þús. kr.Þús. kr.Þús. kr.Þús. kr.
Rekstrarreikningur     
Vaxtatekjur................................................1.568.7671.327.6691.172.4441.098.491855.106
Vaxtagjöld..................................................1.008.429805.812662.991630.646428.828
Hreinar vaxtatekjur.....................................560.338521.857509.454467.845426.278
Rekstrartekjur............................................570.837667.103645.486616.573549.588
Hreinar rekstrartekjur.................................1.131.1751.188.9601.154.9401.084.418975.866
      
Rekstrargjöld..............................................963.8721.250.7711.059.525971.031876.235
Hagnaður (-tap) ársins............................167.303-61.81195.415113.38799.631
      
Með rekstrargjöldum eru færð framlög í afskriftareikning útlána og matsbr. hlutafjár     
Framl. í afskriftarr. útlána og matsbr. hlutaf...134.913298.032182.258114.851111.179
      
Efnahagsreikningur31.12.202131.12.202031.12.201931.12.201831.12.2017
Eignir     
Bankainnistæður.........................................1.117.6271.165.407474.6791.102.4711.089.861
Útlán til viðskiptavina...................................18.625.31516.834.88513.850.09812.113.27410.463.653
Fullnustueignir.............................................320.010270.010441.010347.510340.510
Veltuhlutabréf.............................................357.899353.283585.845571.706594.926
Hlutdeildarfélög...........................................739.368699.594682.252642.237576.288
Viðskiptakröfur...........................................57.993124.48926.59929.71314.147
Varanlegir rekstrarfjármunir.........................831.179837.284414.97579.40353.858
Eignir samtals..........................................22.049.39120.284.95216.475.45914.886.31313.133.244
      
Skuldir og eigið fé     
Lántökur og skuldabréfaútgáfur....................18.159.78616.788.79913.014.31811.504.0959.920.045
Óráðstöfuð framlög.....................................442.533241.587119.710123.593130.852
Aðrar skuldir...............................................125.485100.281125.336137.94475.053
Skuldir samtals........................................18.727.80317.130.66713.259.36411.765.63310.125.951
      
Eigið fé.......................................................3.321.5873.154.2843.216.0953.120.6803.007.293
Skuldir og eigið fé samtals......................22.049.39120.284.95216.475.45914.886.31313.133.244
      
Sjóðstreymi20212020201920182017
Handbært fé (-til) frá rekstri.........................479.647368.640427.163248.164290.075
Fjárfestingarhreyfingar................................-1.822.730-2.855.602-2.220.233-1.327.614-765.620
Fjármögnunarhreyfingar..............................1.295.3043.177.6901.165.2791.092.060-1.192.136
Hækkun/(-lækkun) á handbæru fé...............-47.780690.727-627.79112.610-1.667.681
Handbært fé í ársbyrjun...............................1.165.407474.6791.102.4711.089.8612.757.542
Handbært fé í árslok................................1.117.6271.165.407474.6791.102.4711.089.861
      
Eiginfjárhlutfall samkvæmt lögum um lánastofnanir aðrar en viðskiptabanka og sparisjóði18,17%19,12%19,25%21,45%23,57%

Viðhengi



Attachments

Byggðastofnun Ársreikningur 2021 - endanlegur Fréttatilkynning v ársreiknings 2021 Byggðastofnun Ársreikningur 2021 - endanlegur