Marel: Fjárfestafundur vegna kaupa á Wenger


Þann 27. apríl 2022, tilkynnti Marel um undirritun samnings um kaup á Wenger, sem er leiðandi á heimsvísu í framleiðslu á hátæknilausnum fyrir matvælavinnslu fyrir gæludýr, plöntuprótein (e. plant-based protein) og fóður fyrir fiskeldi.

Meðfylgjandi má finna fjárfestakynninguna sem farið verður yfir á aukalegum fjárfestafundi í dag kl. 14.00. Þar munu stjórnendur kynna kaupin á Wenger, nýtt tekjusvið sem myndar fjórðu stoðina í viðskiptamódeli Marel.

Fundinum verður vefvarpað beint og upptaka verður aðgengileg á marel.com/ir eftir fundinn.

Fylgjast með fundinum í gegnum Zoom

Fjárfestatengsl

Nánari upplýsingar veita fjárfestatengsl Marel í gegnum netfangið ir@marel.com og í síma 563 8001.

Um Marel

Marel (NASDAQ: MAREL; AEX: MAREL) er í fararbroddi á heimsvísu í þróun og framleiðslu tækja, hugbúnaðar og þjónustu fyrir matvælavinnslu á kjúklingi, kjöti og fiski. Í gegnum árin, hefur Marel skref fyrir skref, útvíkkað starfsemi sína. Með kaupunum á Wenger, sem tilkynnt voru 27. apríl, myndast fjórða stoðin í viðskiptamódeli Marel með áherslu á lausnum fyrir matvælavinnslu fyrir gæludýr, plöntuprótein og fóður fyrir fiskeldi. Hjá félaginu starfa yfir 7.500 manns í yfir 30 löndum, þar af um 750 á Íslandi. Marel velti um 1,4 milljarði evra árið 2021 en árlega fjárfestir Marel um 6% af veltu í nýsköpun og vöruþróun sem styður við aukna hagkvæmni, öryggi og sjálfbærni í matvælavinnslu. Félagið hefur verið skráð í Kauphöll Íslands síðan árið 1992 og var lokið við tvíhliða skráningu í Euronext Kauphöllina í Amsterdam árið 2019. Frekari upplýsingar má finna á marel.com/ir.

Viðhengi



Attachments

Marel - Agreement to acquire Wenger - Investor presentation