Aðalfundur staðfestir 15 milljarða arð
Á aðalfundi sem haldinn var í dag 29. apríl skipaði fjármála- og efnahagsráðherra í stjórn Landsvirkjunar, samkvæmt lögum um fyrirtækið.
Aðalmenn í stjórn Landsvirkjunar eru Jónas Þór Guðmundsson, Álfheiður Ingadóttir, Gunnar Tryggvason, Jón Björn Hákonarson og Soffía Björk Guðmundsdóttir. Sú breyting varð því, að Soffía Björk kom ný inn í stjórn í stað Hákonar Hákonarsonar.
Varamenn í stjórn Landsvirkjunar eru Jens Garðar Helgason, Ragnar Óskarsson, Guðveig Eyglóardóttir, Jón Bragi Gunnlaugsson og Albertína Friðbjörg Elíasdóttir.
Jónas áfram stjórnarformaður
Aðalfundurinn staðfesti skýrslu fráfarandi stjórnar og samstæðureikning fyrir liðið reikningsár. Á aðalfundinum var jafnframt samþykkt tillaga stjórnar um arðgreiðslu til eigenda að fjárhæð 15 milljarðar króna fyrir árið 2021.
Deloitte ehf. var kosið endurskoðunarfyrirtæki Landsvirkjunar.
Á fyrsta fundi nýrrar stjórnar eftir aðalfund var Jónas Þór Guðmundsson endurkjörinn formaður stjórnar. Jón Björn Hákonarson er nýr varaformaður.
Rafræna ársskýrslu og ársreikning Landsvirkjunar fyrir árið 2021 má finna á https://www.landsvirkjun.is/arsskyrslur/arsskyrsla-2021