Eik fasteignafélag hf.: Birting uppgjörs þriðja ársfjórðungs ársins 2022 þann 27. október. Kynningarfundur 28. október


Eik fasteignafélag hf. mun birta uppgjör þriðja ársfjórðungs 2022 eftir lokun markaða fimmtudaginn 27. október nk. Rafrænn kynningarfundur verður haldinn föstudaginn 28. október nk. klukkan 8:30. Garðar Hannes Friðjónsson, forstjóri og Lýður H. Gunnarsson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, munu kynna uppgjörið og svara spurningum að lokinni kynningu.
Tengill á fundinn mun verða sendur út samhliða birtingu uppgjörsins.