4,7 milljarða króna hagnaður varð af starfsemi samstæðu Orkuveitu Reykjavíkur fyrstu níu mánuði ársins. Rekstrarafkoma og fjárflæði frá rekstri er stöðugt en reiknaðar stærðir vegna mikils flökts á álverði og verðbólgu innanlands hafa áhrif á heildarniðurstöðu árshlutareiknings samstæðu OR, sem stjórn samþykkti í dag. Innan samstæðunnar eru, auk móðurfélagsins; Veitur, Orka náttúrunnar, Ljósleiðarinn og Carbfix.
Tekjuvöxtur það sem af er ári skýrist einkum af háu álverði framan af árinu. Tekjur allra starfsþátta samstæðunnar jukust milli ára um á bilinu 3-16%. Minnstur varð tekjuauki vatnsveitunnar en aðrar tekjur, þar sem Ljósleiðarinn vegur þyngst, jukust hlutfallslega mest. Þrátt fyrir að Orkuveita Reykjavíkur hafi fest stóran hluta vaxta á langtíma lánum, sjást ýmis verðbólguáhrif í árshlutauppgjörinu. Þar má nefna hækkandi verð á aðföngum, hækkandi tilboð í framkvæmdaverk og hækkandi verðbætur verðtryggðra lána.
Bjarni Bjarnason, forstjóri OR
„Nýleg fjárhagsspá Orkuveitu Reykjavíkur fyrir árin 2023-2027 endurspeglar mikla þátttöku fyrirtækjanna í samstæðunni í samfélagslegum verkefnum næstu ára. Þar má nefna fjárfestingu vegna átaks ríkis og sveitarfélaga í uppbyggingu íbúðarhúsnæðis, borgarlínuverkefni sveitarfélaga og ríkis auk annarra orkuskipta.
Á sama tíma og stjórnvöld hvetja okkur til fjárfestinga áttfaldar annar armur ríkisvaldsins stýrivexti í landinu á innan við tveimur árum. Háir vextir eiga, að öðru jöfnu, að hvetja okkur til að slá á frest verkum sem ekki eru brýn. Það eru því krefjandi tímar í starfseminni en vonandi að ytri aðstæður muni ekki hefta þau umbótaverkefni sem við tökum þátt í.“
Nánari upplýsingar:
Benedikt Kjartan Magnússon
Framkvæmdastjóri fjármála OR
516 6100
Viðhengi