Stjórnendauppgjör 2022 og rekstraráætlun 2023


Samkvæmt stjórnendauppgjöri nam EBITDA ársins 6.608 m.kr. og eru niðurstöðurnar í takt við uppfærðar horfur félagsins.

Helstu niðurstöður eru:

  • Rekstrartekjur námu 10.078 m.kr.
  • Leigutekjur námu 8.562 m.kr. og jukust um 11% milli ára
  • Rekstrarhagnaður fyrir matsbreytingu, söluhagnað fjárfestingareigna og afskriftir nam 6.608 m.kr.
  • Matsbreyting fjárfestingareigna nam 10.431 m.kr.
  • Söluhagnaður fjárfestingareigna nam 362 m.kr.
  • Handbært fé frá rekstri nam 4.066 m.kr.
  • Bókfært virði fjárfestingareigna nam 119.639 m.kr.
  • Vaxtaberandi skuldir námu 70.272 m.kr.
  • Vegnir verðtryggðir vextir námu 3,03%
  • Vegnir óverðtryggðir vextir námu 7,31%
  • Eiginfjárhlutfall nam 34,0% í lok árs
  • Virðisútleiguhlutfall nam 95,7% í lok árs

Fjárhagsáætlun 2023:

Félagið spáir því að rekstrartekjur félagsins verði á bilinu 10.350-10.570 m.kr. á árinu 2023 á föstu verðlagi m.v. vísitölu neysluverðs í janúar. Þá áætlar félagið að EBITDA ársins verði á bilinu 6.690-6.970 m.kr.

Í meðfylgjandi kynningu eru ítarlegri upplýsingar um stjórnendauppgjör og forsendur fjárhagsáætlunar.

Nánari upplýsingar veita:

Garðar Hannes Friðjónsson, forstjóri, gardar@eik.is, s. 590-2200
Lýður H. Gunnarsson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, lydur@eik.is s. 590-2200 / 820 8980

Viðhengi



Attachments

23.02.06 Stjórnendauppgjör 2022 og áætlun 2023