Eik fasteignafélag hf.: Jóhann Magnús Jóhannsson framkvæmdastjóri lögfræðisviðs hættir störfum


Jóhann Magnús Jóhannsson, framkvæmdastjóri lögfræðisviðs Eikar fasteignafélags hf. og regluvörður, hefur sagt starfi sínu lausu. Hann mun starfa fram á vor og sinna verkefnum fyrir félagið eftir því hvernig ráðningu eftirmanns vindur fram.

Jóhann Magnús Jóhannsson:
„Núna er góður tími fyrir mig að breyta til og ég hlakka til að takast á við nýjar áskoranir. Það hefur verið ánægjulegt og lærdómsríkt að vinna hjá Eik fasteignafélagi og ég óska félaginu og starfsfólki þess alls hins besta.“

Garðar Hannes Friðjónsson, forstjóri:
„Jóhann Magnús hefur stýrt lögfræðisviðinu af öryggi auk þess sem félagið hefur notið góðs af framlagi hans til umbóta í innra starfi. Ég þakka Jóhanni Magnúsi frábært samstarf og óska honum alls hins besta í nýju hlutverki hjá lögfræðistofunni BBA Fjeldco.“