Á aðalfundi Landsvirkjunar sem haldinn var í dag 26. apríl skipaði fjármála- og efnahagsráðherra í stjórn fyrirtækisins, í samræmi við lög sem um það gilda.
Engar breytingar voru gerðar á stjórn eða varastjórn. Aðalmenn í stjórn Landsvirkjunar eru Jónas Þór Guðmundsson, Álfheiður Ingadóttir, Gunnar Tryggvason, Jón Björn Hákonarson og Soffía Björk Guðmundsdóttir.
Varamenn í stjórn Landsvirkjunar eru Jens Garðar Helgason, Ragnar Óskarsson, Guðveig Eyglóardóttir, Jón Bragi Gunnlaugsson og Albertína Friðbjörg Elíasdóttir.
Jónas áfram stjórnarformaður
Aðalfundurinn staðfesti skýrslu fráfarandi stjórnar og samstæðureikning fyrir liðið reikningsár. Á aðalfundinum var jafnframt samþykkt tillaga stjórnar um arðgreiðslu til eigenda að fjárhæð 20 milljarðar króna fyrir árið 2022.
Deloitte ehf. var kosið endurskoðunarfyrirtæki Landsvirkjunar.
Á fyrsta fundi stjórnar eftir aðalfund var Jónas Þór Guðmundsson endurkjörinn formaður stjórnar og Jón Björn Hákonarson endurkjörinn varaformaður.
Ársskýrsla og ársreikningur Landsvirkjunar fyrir árið 2022